Viðskipti innlent

Síminn semur um kaup á Vísi og út­varps­stöðvum Sýnar

Kjartan Kjartansson skrifar
Sýn og Síminn ræða nú um að Síminn kaupi vef- og útvarpsmiðla Sýnar.
Sýn og Síminn ræða nú um að Síminn kaupi vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Vísir

Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda.

Í tilkynningu frá Sýn kemur fram að stjórn félagsins hafi tekið ákvörðun um að ganga til einkaviðræðna við Símann hf. á grundvelli skilmálaskjals um kaup á öllum vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal.

Síminn segir í sinni tilkynningu um að fyrirtækin hafi komist að samkomulagi um helstu skilmála vegna mögulegra kaupa Símans á vef- og útvarpsmiðlunum. Félögin skuldbindi sig til þess að vinna að því að undirrita kaupsamning á grundvelli skilmálanna. 

Viðskiptin séu þó háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, samkomulagi um endanlegan kaupsamning, samþykki stjórna beggja félaga og eftirlitsaðila.

Heildarvirði (e. enterprise value) í viðskiptunum nemur samkvæmt skilmálaskjali 5.250 m.kr. Tekjur miðlanna á árinu 2025 eru sagðar hafa verið um þrír milljarðar króna.

„Eins og áður hefur komið fram hefur stjórn Sýnar hf. haft framtíðarfyrirkomulag á rekstri fjölmiðlahluta félagsins til skoðunar. Sala umræddra miðla er liður í stefnumótandi endurskipulagningu rekstrar Sýnar sem miðar að því að einfalda starfsemi félagsins og styrkja rekstrargrundvöll þess til framtíðar. Með því að skerpa áherslur í rekstrinum er markmiðið að tryggja áframhaldandi framúrskarandi þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki og arðbæran rekstur til lengri tíma.“

Telja „vörumerkin“ falla vel að starfsemi Símans

Haft er eftir Maríu Björk Einarsdóttur, forstjóra Símans, að vef- og útvarpsmiðlar Sýnar hafi fest sig í sessi sem ómissandi veita frétta og afþreyingar hjá meirihluta landsmanna. 

„Öflugur mannauður og sterk vörumerki miðlanna falla vel að okkar starfsemi, og við trúum því að sameinað miðlafyrirtæki undir móðurfélaginu Ásum, verði í góðri stöðu til að veita framúrskarandi fjölmiðlaþjónustu í síbreytilegu umhverfi.“

Starfsmönnum Sýnar var tilkynnt klukkan níu um starfsmannafund um ótilgreint efni sem hófst klukkan 9:15. Tilkynning um viðræðurnar við Símann var send til kauphallar á sama tíma.

Erfiður rekstur og niðurskurður

Rekstur Sýnar hefur verið þungur að undanförnu. Félagið tapaði 634 milljónum króna í fyrra. Niðurskurður hefur verið á fréttastofu Sýnar með uppsögnum á undanförnum mánuðum og þá var ákvörðun tekin um að hætta að senda út sjónvarpsfréttir um helgar.

Vodafone keypti fjölmiðla 365 miðla að Fréttablaðinu undanskildu árið 2017. Fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemin hefur verið rekin í félaginu Sýn. Í fyrra ákváðu stjórnendur Sýnar að leggja niður tæplega þrjátíu ára gamalt vörumerki Stöðvar 2 og kenna fjölmiðla fyrirtækisins við Sýn.

Fréttin verður uppfærð. Vísir er í eigu Sýnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×