Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Freyja Þórisdóttir skrifar 7. mars 2026 20:53 Happdrætti Háskóla Íslands, HHÍ Vísir/Einar Íslensk kona hefur játað fyrir að hafa stolið rúmum sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands en hún starfaði þar sem sumarstarfsmaður árið 2023. Hún hefur verið dæmd í 30 daga fangelsisvist skilorðsbundið og henni verður gert að greiða allan sakarkostnað málsins sem og milljónirnar sjö til baka.
Þetta kemur fram í dómi héraðsdóms. Þar greinir einnig frá því að konan hafi dregið sér pening frá Happdrætti Háskóla Íslands (HHÍ) á tvo mismunandi máta. Á tímabilinu 12. júní 2023 til 31. ágúst sama ár tók hún út reiðufé sem var geymt í peningaskáp á starfsstöðinni sem hún ein hafði aðgang að. Það gerði hún í nokkur skipti en alls tók hún sér rúmar tvær milljónir til eigin afnota það tímabil. Seinna tímabilið sem greinir frá í dómnum er 22. september til 23. september 2023 en þá millifærði hún samtals fimm milljónir íslenskra króna af reikningi Húseignarinnar Steindórsprents ehf., sem er dótturfyrirtæki HHÍ, og yfir á eigin reikning. Það gerði hún í þremur mismunandi millfærslum sem hljóðuðu upp á fimm hundruð þúsund, aftur fimm hundruð þúsund og loks fjórar milljónir. Sjúkrahúsið Vogur er einn meðferðarstaðanna sem standa fólki í neyslu til boða.Vísir/Vilhelm Allt tímabilið starfaði hún sem sumarstarfsmaður hjá HHÍ en málið kom fyrst fyrir dóm þann 4. febrúar 2026 en dómur var kveðinn upp 13. febrúar síðastliðinn. Í dómnum kemur fram að hin ákærða hafi játað sök í málinu skýlaust en einnig kemur fram að hún hafi verið í meðferð og dvalið á áfangaheimili síðan að brotin voru framin. „Ákærða hefur þannig hætt neyslu og snúið lífi sínu til betri vegar og verður litið til þess við ákvörðun refsingar. Á hinn bóginn verður ekki horft fram hjá því að ákærða hefur með háttsemi sinni gerst sek um fjárdrátt sem varðar talsverða fjárhæð,“ segir í dómnum. Niðurstaða dómsins kveður á um að sú ákærða sitji inni í þrjátíu daga og greiði HHÍ rúmar sjö milljónir til baka með vöxtum. Einnig er henni gert að greiða tæplega eina og hálfa milljón í málskostnað og annan sakarkostnað.
Dómsmál Fjárhættuspil Efnahagsbrot Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira