Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. mars 2026 06:57 Fjármálaráðherrann Scott Bessent heldur því fram að ekki sé um að ræða ávinning fyrir Rússa. Getty/Tom Williams Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa veitt Indlandi 30 daga undanþágu til að kaupa olíu frá Rússlandi, vegna átakanna sem nú standa yfir í Mið-Austurlöndum.
Fjármálaráðherrann Scott Bessent sagði ekki um að ræða ávinning til handa Rússum, þar sem aðeins væri um að ræða olíu sem þegar hefði verið á leið til Indlands. Þá sagði hann ákvörðun Bandaríkjanna mega rekja til tilrauna Írana til að halda orku heimsins í gíslingu. Bessent er þarna að vísa til þess að umferð olíuflutningaskipa um Hormuz-sund hefur allt að því legið niðri frá því að Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir á Íran um helgina. Íranir hafa í kjölfarið sagst hafa fulla stjórn á umferð um sundið. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði fyrr í vikunni að hann myndi mögulega senda herskip til að fylgja flutningaskipum um sundið ef þess þyrfti. Ekkert hefur orðið af því enn sem komið er. Um fimmtungur allrar olíu í heiminum fer um Hormuz-sund, um það bil helmingurinn til Kína. Áhyggjur hafa verið uppi um að árásirnar á Íran muni koma Rússum til góða, bæði vegna aukinnar eftirspurnar eftir olíu og hækkandi verðs en einnig vegna þess að fókus alþjóðasamfélagsins hefur nú enn og aftur færst frá Úkraínu fyrir tilstilli Bandaríkjanna.
Rússland Indland Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Jarðefnaeldsneyti Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira