Tengsl, tími og traust: Reynslusaga úr móttökubekk í Kaupmannahöfn Jórunn Einarsdóttir skrifar 5. mars 2026 12:02 Íslenskt skólakerfi stendur á mikilvægum tímamótum. Þótt ég sé búsett í Kaupmannahöfn og starfi þar, fylgist ég náið með umræðunni um menntamál á Íslandi, enda brenna sömu spurningar á okkur öllum sem sinnum fjölbreyttum nemendahópum. Á undanförnum árum hefur nemendum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn fjölgað hratt. Þessari þróun fylgja áskoranir sem mikilvægt er að mæta af fagmennsku og mannúð. Það er dýrmætt að auðga skólasamfélagið með ólíkum reynsluheimum en á sama tíma verður að tryggja að skólasamfélagið sé í stakk búið til að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir. Á Íslandi virðist ekki ríkja einhugur um hvaða leiðir séu bestar til að styðja við farsæla inngildingu þessara barna. Á að leggja áherslu á sérhæfða móttökubekki, stofna sérstaka móttökuskóla eða velja beina inngildingu þar sem nemandi fer strax inn í almennan bekk með stuðningi? Allar þessar leiðir hafa sína kosti og galla, en mín reynsla sem kennari í móttökubekk í Kaupmannahöfn hefur kennt mér er að mikilvægast af öllu er að hafa svigrúm og tíma til að byggja upp traust áður en eiginleg bókleg kennsla hefst. Breiður hópur og ólíkar þarfir Í móttökubekk er nemendahópurinn afar fjölbreyttur. Í einum og sama hópnum, sem miðast við að hámarki 12 nemendur, situr kannski barn sem hefur átt reglulega skólagöngu í heimalandinu og les reiprennandi á sínu móðurmáli. Við hlið þess situr svo annað barn, kannski tveimur árum eldra, sem hefur búið við rofna skólagöngu vegna stríðsátaka eða flótta. Sum börn kunna leikreglur skólans; þau mæta á réttum tíma, rétta upp hönd, sitja kyrr og kunna að nota skriffæri og tölvu. Önnur standa frammi fyrir því að þurfa að læra sjálft nemenda hlutverkið samhliða nýju tungumáli. Sum eru snögg að tileinka sér nýjan skólabrag á meðan önnur berjast við óróleika og óöryggi í nýju umhverfi og eiga þ.a.l. erfitt uppdráttar. Öryggið kemur á undan málfræðinni Ég kenni í móttökubekk á miðstigi. Börnin í mínum bekk eru á aldrinum 10 - 13 ára. Ég gleymi seint drengnum, sem varla komst inn fyrir þröskuldinn þegar hann byrjaði. Hann lá með höfuðið fram á borðið og leit flóttalega í kringum sig. Hann rétti ekki úr sér og ég náði engu augnsambandi við hann . Hann átti erfitt með að tjá sig á móðurmálinu og var því líka óöruggur gagnvart samlöndum sínum. Hvernig kennir maður barni sem er svo örmagna á líkama og sál? Í slíkum tilfellum verður maður að velja öryggið fram yfir kennsluáætlanir. Fyrstu mánuðina lærði hann ekki mikla dönsku en hann lærði að ég væri fullorðin manneskja sem vildi honum vel. Að mæta öllum í senn Starfið í móttökubekk krefst stöðugrar samþættingar og einstaklingsmiðunar. Á meðan einn nemandi æfir sig í að tengja hljóð og stafi, er annar að lesa eða skrifa stutta texta og æfa setningaskipan. Áskorunin felst í því að halda ekki aftur af þeim sterku en týna samt ekki þeim sem eru rétt að stíga sín fyrstu skref. Verkefnið er krefjandi og tíminn er naumur. Þess vegna er mikilvægt að þetta sé ekki verkefni eins kennara heldur alls skólasamfélagsins. Í mínum skóla erum við í nánu samstarfi við umsjónarkennara, sérkennsluteymið og stjórnendur. Við ræðum líðan, félagsleg tengsl og námsleg markmið reglulega, oft á skipulögðum fundum. Samstaða um inngildingu Starfið í móttökubekk er í senn tengslavinna, kennslufræði og skipulagning. Það krefst þolinmæði og sveigjanleika. En umfram allt krefst það þess að við sem samfélag áttum okkur á því að á bak við hvert nýtt orð liggur dýrmæt tengslavinna. Hvort sem við veljum móttökubekki eða beina inngildingu á Íslandi, þá verður fjármagn og mönnun að fylgja svo við getum sinnt þessum mikilvæga hópi af þeirri reisn sem hann á skilið. Við megum ekki láta fagfólkið okkar upplifa að það sé eitt á báti í þessu stóra verkefni. Árangursrík inngilding er sameiginlegt átak. Höfundur er ráðgjafi og kennari í móttökubekk í Kaupmannahöfn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Danmörk Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar