Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. mars 2026 06:40 Fimmtungur af allri olíu heims fer um Hormuz-sund, bróðurparturinn til Asíu. Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðu mála á sundinu en samkvæmt erlendum miðlum hefur umferð um sundið svo til fallið niður síðustu daga. Getty/Nikolas Kokovlis Hernaðaryfirvöldum í Íran annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi. Íranir sögðust í gær hafa fulla stjórn á skipaumferð um sundið og að allir sem fær þar um ættu á hættu að verða fyrir árásum eldflauga eða dróna.
Bandaríski aðmírállinn Brad Cooper sagði hins vegar að Bandaríkjamenn ynnu að því að sökkva flota Íran og hefðu þegar tortímt sautján herskipum. Á þessum tímapunkti væri ekki eitt einasta íranska herskip á sundinu, í Ómanflóa né á Arabíuhafi. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Bandaríkjamenn myndu mögulega fylgja skipum um Hormuz-sund ef til þess kæmi. Cooper sagði einnig í gær að aðgerðir Bandaríkjamanna gegn Íran hefðu á fyrsta sólahringnum verið nærri tvöfalt umfangsmeiri en þegar ráðist var gegn Írak árið 2003. Bandaríkjamenn hefðu ráðist á 2.000 skotmörk það sem af er. Íbúar ganga framhjá byggingu sem varð fyrir árás Ísraelshers í Hazmieh í Líbanon.AP/Hussein Malla Íranir skutu eldflaugum á Ísrael í morgun og voru viðvaranir gefnar út til íbúa í Jerúsalem, Tel Aviv og víðar um að leita skjóls. Engar fregnir hafa borist af mannskaða. Ísraelar gerðu sjálfir árásir á Líbanon í morgun, þar sem fjórir létu lífið og sex særðust. Þá heyrðust sprengingar í Tehran í morgun. Talið er að um 800 hafi fallið í árásum Bandaríkjamanna og Ísrael á Íran. Tugþúsundir eru enn strandaglópar vegna átakanna en ríki heims hafa unnið að því að reyna að ná ríkissborgurum sínum frá Mið-Austurlöndum.
Íran Bandaríkin Ísrael Líbanon Hernaður Bensín og olía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira