Samfélag sem ýtir undir nærandi tengsl Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar 3. mars 2026 22:32 Við búum í samfélagi sem leggur ríka áherslu á sjálfsbjargarviðleitni og einstaklingsframtak. En þegar einmanaleiki er skilgreindur fyrst og fremst sem vandamál einstaklingsins missum við sjónar á stærri myndinni. Í borgarstjórn í dag samþykktum við að vinna aðgerðir gegn einmanaleika og að efla frístundaþjónustu. Af því tilefni nefni ég mikilvægi þess að við skoðum einmanaleika í stærra samhengi. Hvetjandi og letjandi aðstæður Í umræðu um einmanaleika beinist athyglin gjarnan að einstaklingnum. Okkur er ráðlagt að hringja í vin, bjóða í mat, skrá okkur á námskeið eða prófa eitthvað nýtt. Þetta eru góð og gild ráð en þau taka síður mið af samfélagsgerðinni og því hvernig hún getur annaðhvort auðveldað fólki að skapa og viðhalda tengslum eða gert það erfiðara. Óviðunandi húsnæði Óviðunandi húsnæðisaðstæður valda því að fjölskyldur flytja ítrekað og slíkur óstöðugleiki bitnar sérstaklega á börnum. Þegar barn þarf að skipta um skóla rofna tengsl, vinahópar leysast upp sem hefur slæm áhrif á líðan barna. Barn sem þarf ítrekað að byrja upp á nýtt í nýju umhverfi missir ekki bara heimili sitt heldur líka tilfinninguna fyrir því að tilheyra. Efnahagslegar aðstæður og félagsleg einangrun Efnahagslegar aðstæður hafa bein áhrif á félagsleg tengsl. Þau sem eiga erfitt með að ná endum saman finna oftar fyrir einmanaleika. Einmanaleiki í slíkum aðstæðum er ekki merki um að einstaklingur hafi brugðist. Hann er afleiðing utanaðkomandi aðstæðna sem gera fólki erfitt fyrir að festa rætur og mynda tengsl. Fjarlægjum hindranir og eflum tengslamyndun Ef við ætlum að draga úr einmanaleika þurfum við að beina sjónum að hindrunum sem standa í vegi fyrir tengslamyndun. Þar gegna sveitarfélög lykilhlutverki. Við þurfum að: tryggja áreiðanlegar og aðgengilegar samgöngur svo fólk geti hitt hvert annað án mikils kostnaðar eða flókins skipulags, bjóða upp á öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði sem gerir öllum kleift að festa rætur í nærumhverfi sínu, skapa lifandi og aðgengileg almenningsrými þar sem fólk getur dvalið og hist án þess að greiða fyrir aðgang, móta vinnuumhverfi og þjónustu sem gefur fólki raunverulegan tíma og orku til að rækta tengsl utan vinnunnar. Einmanaleiki er ekki sönnun þess að fólk hafi „klikkað“ í samskiptum. Hann er oft spegilmynd samfélags sem hefur ekki gert nægilega vel í að skapa aðstæður fyrir nærandi tengsl. Einmanaleiki verður ekki leystur með sjálfshjálparráðum, heldur með markvissri uppbyggingu samfélags sem ýtir undir nærandi tengsl. Höfundur er borgarfulltrúi og oddviti Vinstrisins í kosningum í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sanna Magdalena Mörtudóttir Vinstrið Reykjavík Geðheilbrigði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar