Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Eiður Þór Árnason skrifar 3. mars 2026 15:30 Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Vísir/vilhelm Samfylkingin tapar fylgi milli mánaða á meðan Framsókn og Vinstri græn bæta við sig. Þetta sýna niðurstöður nýs Þjóðarpúls Gallups en stuðningur við ríkisstjórnina minnkar frá því í janúar. Miðflokkurinn mælist áfram stærri en Sjálfstæðisflokkurinn.
Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um tæplega þrjú prósentustig og fer úr 31,2% í 28,5%. Samhliða eykst fylgi Framsóknarflokksins og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um sitt hvort prósentustigið. Litlar breytingar eru á stuðningi við aðra flokka milli mánaða og eru þær ekki tölfræðilega marktækar. Næstum 52% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina sem eru 2,4 prósentustigum færri en í janúarmælingunni. Fleiri styðja ríkisstjórnina en ríkisstjórnarflokkana þrjá samanlagt. Athygli vekur að nokkuð færri mældust ánægðir með störf ríkisstjórnarinnar í nýlegri könnun Prósents þar sem talan var 37%. Gallup Vinstri græn teygja sig nær fimm prósenta markinu Könnun Gallup fór fram dagana 2. febrúar til 1. mars og greint er frá niðurstöðunum í tilkynningu frá fyrirtækinu. Í könnuninni mældist Samfylkingin með tæp 29% líkt og áður segir en næst á eftir fylgja Miðflokkurinn með rúm 20% og Sjálfstæðisflokkurinn með um 18% fylgi. Um 11% myndu kjósa Viðreisn, tæplega 7% Framsóknarflokkinn, nær 6% Flokk fólksins, rúmlega 4% Vinstri græn, næstum 3% Pírata og rösklega 2% Sósíalistaflokk Íslands. Nærri 7% myndu skila auðu eða ekki kjósa og tæplega 14% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Samfylkingin mældist með 34,7% fylgi í Þjóðarpúlsi Gallup í júlí 2025 og hefur stuðningurinn nú minnkað um sex prósentustig. Gallup Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Gallup gerði á landsvísu og voru einstaklingar í úrtaki handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup. Heildarúrtaksstærð var 9.958 og þátttökuhlutfall 44,3%. Vikmörk á fylgi flokka eru 0,5% til 1,5%. Spurningarnar voru eftirfarandi: 1) Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? 2) En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu? 3) Styður þú ríkisstjórnina?
Skoðanakannanir Samfylkingin Flokkur fólksins Viðreisn Vinstri græn Sósíalistaflokkurinn Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Píratar Tengdar fréttir Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar Tæplega helmingur þjóðarinnar er óánægður með störf ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, eða 45 prósent samkvæmt nýrri skoðanakönnun Prósents. 37 prósent eru ánægð með störf stjórnarinnar. 27. febrúar 2026 15:28 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira
Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar Tæplega helmingur þjóðarinnar er óánægður með störf ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, eða 45 prósent samkvæmt nýrri skoðanakönnun Prósents. 37 prósent eru ánægð með störf stjórnarinnar. 27. febrúar 2026 15:28