Körfubolti

Toppliðið í Litaén hjálpar lands­liðinu gegn Ís­landi

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ąžuolas Tubelis er einn af þremur leikmönnum Kaunas Zalgiris sem fær að taka þátt í leik dagsins.
Ąžuolas Tubelis er einn af þremur leikmönnum Kaunas Zalgiris sem fær að taka þátt í leik dagsins. Eitvydas Kinaitis/Euroleague Basketball via Getty Images

Þrír leikmenn í Kaunas Zalgiris, toppliði litáensku úrvalsdeildarinnar, fengu leyfi frá félaginu til að spila með landsliði Litáen gegn Íslandi á eftir.

Ąžuolas Tubelis, Ignas Brazdeikis og Mantas Rubštavičius eru því allir skráðir í leikmannahóp dagsins. Þeir tveir fyrrnefndu spiluðu tæpar þrjátíu mínútur í tapinu gegn Íslandi á föstudag en sá síðastnefndi spilaði tæpar tíu mínútur í þeim leik.

Kaunas Zalgiris á mikilvægan leik í Evrópudeildinni á fimmtudag gegn Valencia og upphaflega áttu þessir þrír leikmenn ekki að spila seinni leik liðanna, sem hefst núna klukkan 16:30.

Ljóst er að Litáen vill ekki upplifa aftur niðurlægjandi tap gegn Íslandi eins og raunin varð síðasta föstudag. Þetta er þó ekki þeirra allra sterkasti hópur en NBA leikmennirnir Domantas Sabonis, Jonas Valanciunas og Matas Buzelis eru ekki með landsliðinu.

Tvær breytingar hafa verið gerðar á íslenska landsliðshópnum frá því í síðasta leik. Haukur Helgi Pálsson verður ekki með vegna meiðsla og þá fékk Kári Jónsson leyfi þar sem hann er að verða pabbi á næstu dögum. Í þeirra stað komu tveir leikmenn Álftaness, þeir Sigurður Pétursson og Ragnar Nathanaelsson.

Leikur Litáen og Íslands hefst klukkan 16:30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×