Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Agnar Már Másson skrifar 1. mars 2026 08:25 Abdolrahim Mousavi, Aziz Nasirzadeh, Ayatollah Ali Khamenei, Mohammad Pakpour og Ali Shamkhani, voru felldir í árásinni á Íran. Samsett/Getty Íranir heita hefndum eftir að fjöldi háttsettra manna, þar á meðal æðsti leiðtogi landsins, var felldur í árásum Ísraels og Bandaríkjanna í gær. Ísraelsmenn segjast hafa drepið æðstaklerkinn í fyrstu sprengjuhríðinni í gær, sem lagði aðsetur hans í eyði.
Ríkisútvarp Írans (IRNA) staðfesti í nótt þær fregnir sem Bandaríkjaforseti tilkynnti í gærkvöldi, að Ayatollah Ali Khamenei æðstiklerkur hefði fallið í árásum Bandaríkjanna og Ísraels í gærmorgun, laugardag. Ertu á átakasvæðinu? Þú getur sent okkur fréttaskot. Ríkismiðillinn sagði enn fremur að nú tæki við fjörutíu daga þjóðarsorg í landinu. Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, skrifar enn fremur á X að æðstiklerkurinn hafa fallið í fyrstu lotu sprengjuárásanna en Ísraelsmenn nefndu aðgerðina „Öskrandi ljón“. Íranski byltingarvörðurinn hefur nú heitið hefndum eftir árásirnar, en auk þeirra féllu um 200 manns hið minnsta í árásunum að sögn íranska Rauða hálfmánans, sem sögðu enn fremur að ríflega 700 væru særðir. Að sögn héraðssaksóknara í Íran féllu um 108 manns í árás á stúlknaskóla í Suður-Íran. Þessi loftmynd frá Airbus sýnir hvar sprengjur Bandaríkjahers og Ísraelshers lentu á aðsetri æðstaklerksins á laugardag.AP Fleiri felldir Fleiri háttsettir embættismenn úr röðum klerkastjórnarinnar voru felldir í árásinni en IRNA greinir einnig frá því að varnarmálaráðherrann Aziz Nasirzadeh hafi verið felldur í gær. Herforinginn Abdolrahim Mousavi, starfsmannastjóri hersins, var einnig felldur samkvæmt umfjöllun IRNA, sem og Mohammad Pakpour, leiðtogi íranska byltingarvarðarins, og Ali Shamkhani, náinn ráðgjafi Khameneis. Varnarmálaráðherrann Aziz Nasirzadeh, Mohammad Pakpour leiðtogi íranska byltingarvarðarins, Ali Shamkhani náinn ráðgjafi Khameneis, og herforinginn Abdolrahim Mousavi.IRNA Hvað svo? Stóra spurningin er hvað tekur við en Bandaríkjaforseti sagði í ávarpi í gær að markmiðið væri meðal annars að knýja fram stjórnarskipti í Íran. Þó að hinn 86 ára Khamenei kunni að vera látinn er alls ekki víst að fráfall hans kunni að jafngilda stjórnarskiptum enda þykir líklegt að aðrir menn úr hans innsta hring taki einfaldlega við og klerkastjórnin haldi velli. „Við höfum búið okkur undir þessi augnablik og íhugað allar sviðsmyndir,“ sagði Mohammad Bagher Ghalibaf, þingforseti Íran, í ávarpi í nótt vegna andláts forsetans. Hann bætti við að Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefðu farið yfir strikið og myndu fá að gjalda fyrir það. Tveimur vikum fyrir árásirnar í dag mat bandaríska leyniþjónustan (CIA) það svo að ef Khamenei, sem hefur stýrt landinu síðan 1989, yrði drepinn í aðgerðinni gætu harðlínumenn úr íranska byltingarverðinum komið í hans stað, að því er Reuters hafði eftir tveimur heimildarmönnum sem þekkja til málsins. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, líkti því svo við „mission impossible“, eða ómögulegt verkefni, að skipta klerkastjórninni út. New York Times hafði í gær eftir heimildarmönnum í Íran að Khamenei hefði sjálfur nefnt þrjá hugsanlega arftaka: Gholam-Hossein Mohseni-Ejei sem er yfirmaður íranska dómkerfisins, Ali Asghar Hejazi sem er starfsmannastjóri klerksins, og Hassan Khomeini sem er afabarn Ruhollah Khomeini. Hvort þeir séu allir enn lífi er svo annað mál. Stríðið muni halda áfram í einhvern tíma Ísraelskir ráðamenn hafa sagt við Reuters og New York Times að þessi átök komi til með að standa yfir í nokkra daga hið minnsta. Bandaríkjaforseti sagði hið sama í gær. „[S]prengingarnar munu aftur á móti halda áfram út vikuna,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á Truth Social í gærkvöldi, þar sem hann greindi frá andláti klerksins. Ísraelsmenn segjast hafa hrundið af stað annarri loftárásabylgju í átt að Íran í morgun, samkvæmt Reuters.
Ísrael Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Fleiri fréttir Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Sjá meira