Krónunum kastað fyrir aurinn Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar 1. mars 2026 07:31 Fréttir af því að Landspítalinn hafi skipt gamla góða smjörvanum út fyrir erlent jurtasmjörlíki hafa vakið töluverð viðbrögð og eflaust mun meiri viðbrögð en stjórnendur spítalans hafa búist við. Læknar og næringarfræðingar hafa gagnrýnt ákvörðunina út frá heilbrigðis- og lýðheilsusjónarmiðum, almennir neytendur hafa lýst yfir vanþóknun sinni á ákvörðuninni og hún hefur meira að segja orðið hagyrðingum yrkisefni. Þrátt fyrir þessa ákvörðun þá yljar það manni engu síður að sjá viðbrögðin. Þau staðfesta enn og aftur þann mikla stuðning og velvilja sem bændur njóta meðal almennings. Ég tek fram að ég tel ekki að Landspítalinn sé „vondi kallinn“ í þessu máli. Það er auðvelt að hafa samúð með stjórnendum spítalans sem eru að gera sitt besta við erfiðar aðstæður og að starfa innan þess ramma sem þeim er settur af stjórnvöldum. Þrátt fyrir vonbrigðin má þó finna jákvæðan þátt í þessu öllu þar sem ákvörðun Landspítalans og viðbrögðin við henni varpa ljósi á það vandamál sem annars fer lítið fyrir í umræðunni. Mikill meirihluti neytenda hér á landi velja íslenska matvöru fram yfir innflutta en í mörgum tilfellum hefur fólk einfaldlega ekki þann valkost. Uppruni matarins er sjaldnast sýnilegur í mötuneytum opinberra stofnana, hvort sem um ræðir skólum, sjúkrahúsum, hjúkrunar- og dvalarheimilum o.s.frv., og þegar hann er upplýstur fylgir því sjaldan raunverulegt val enda getur fólk lítið annað gert en borða það sem fram er borið. Stefnufesta eða innantóm orð? Í innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila frá árinu 2019 segir að íslenska ríkið kaupi „matvæli fyrir um þrjá milljarða króna á ári og sem stórkaupandi getur það haft víðtæk áhrif á eftirspurn eftir matvælum, stuðlað að umhverfisvænum innkaupum, dregið úr kolefnisspori og eflt nýsköpun.“ Á verðlagi dagsins í dag er um að ræða 4,4 milljarða króna, sem er ekkert smáræði. Í innkaupastefnunni segir jafnframt að „[m]eð því að velja innlend matvæli í stað sambærilegra innfluttra matvæla er verið að stuðla að auknu fæðuöryggi og eflingu atvinnustarfsemi hér á landi.” Taka má hjartanlega undir þetta en því miður virðast aurarnir vega þyngra í innkaupum stofnana en langtímamarkmið um fæðuöryggi, eflingu atvinnustarfsemi, nýsköpunar og minni losun kolefnis. Almenn sátt er um það í landinu að mikilvægt sé að hér sé öflugur íslenskur landbúnaður og innlend matvælaframleiðsla. Líkt og á við í nær öllum öðrum ríkjum nýtur landbúnaður og matvælaframleiðsla opinbers stuðnings til að tryggja fæðuöryggi, byggðafestu og verðmætasköpun neytendum og framleiðendum til hagsbóta. Því skýtur það afar skökku við að fyrirtæki og stofnanir ríkisins skuli svo frekar velja innflutta matvöru til notkunar í sínum mötuneytum en í sumum tilfellum er um stórar stofnanir að ræða og töluvert mikil umsvif í innkaupum matvara. Fjármunir, sem ella gætu stutt við markmið ríkisins í fjölda málaflokka, renna þess í stað í vasa heildsala og til framleiðslu landbúnaðarvara - erlendis. Vandfundið er skýrara dæmi um þegar önnur höndin byggir upp á meðan hin rífur niður. Gildi skipta máli Jafnvel áður en stórveldin settu alþjóðakerfið í uppnám var ekki óalgengt að þjóðir og ríkisstjórnir hefðu það sem yfirlýsta stefnu að innlend matvara skyldi ganga fyrir og á undanförnum mánuðum hefur áherslan erlendis beinst að því að efla innlenda framleiðslu, sjálfbærni og viðnámsþol. Almenningur velur íslenskt af ástæðum sem snúast um traust, gæði, dýravelferð, rekjanleika og samfélagslega ábyrgð. Ef ríkið — með skattpeninga almennings — velur hins vegar í tíma og ótíma „bara það ódýrasta“ án sambærilegra krafna, þá er ríkið að senda þau skilaboð að þessi gildi skipti ekki máli. Ég trúi ekki öðru en að stjórnmálamenn, ráðherrar og þingmenn, taki þessi mál til gagngerrar skoðunar. Innlend matvara er framleidd við aðstæður sem þykja öfundsverðar á erlendri grundu, notkun eiturefna og sýklalyfja er brotabrot á við það sem gerist í nágrannalöndunum og fjarlægðin frá framleiðanda til neytanda er örstutt. Landbúnaður og matvælaframleiðsla er hornsteinninn í mörgum dreifðari byggðum landsins auk þess sem þau skipta sköpum fyrir fæðuöryggi og viðnámsþol þjóðarinnar. Ég vona að lesendur velti því fyrir sér hvort þeim þyki rétt að fórna – eða að minnsta kosti stefna í hættu – öllum þessum gæðum til þess eins að spara lítillega á innkaupareikningum opinberra stofnana. Höfundur er framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landbúnaður Rekstur hins opinbera Landspítalinn Matvælaframleiðsla Margrét Ágústa Sigurðardóttir Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar