Samkeppnismat - aukin samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og virkari samkeppni Margrét Einarsdóttir og Páll Gunnar Pálsson skrifa 26. febrúar 2026 16:32 Öflugt og samkeppnishæft atvinnulíf er grunnforsenda velferðar á Íslandi. Til að stuðla að því markmiði er mikilvægt að atvinnulífið búi ekki við þyngri reglu- og stjórnsýslubyrði heldur en þörf er á. Þann 19. febrúar síðastliðinn stóðu Samkeppniseftirlitið, Stjórnarráðið og OECD fyrir opnum fundi sem bar yfirskriftina „Hvernig getum við eflt atvinnustarfsemi og fengið um leið meira fyrir minna?” Upptökur af ráðstefnunni er að finna á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins. Í erindi Federica Maiorano, sérfræðings á samkeppnissviði OECD kom fram að viðamikil úttekt stofnunarinnar á regluverki aðildarríkja leiði í ljós að samkeppnishindranir á Íslandi séu talsvert meiri heldur en meðaltal OECD ríkjanna. Til samanburðar er regluverk hinna Norðurlandanna meira samkeppnishvetjandi en meðaltalið. Í skýrslu OECD frá 2025, um efnahagsaðstæður á Íslandi, kemur fram að með því að draga úr íþyngjandi reglu- og stjórnsýslubyrði mætti hækka verga landsframleiðslu á Íslandi um u.þ.b. 6,5% á 10 ára tímabili. Það er því til mikils að vinna. Samkeppnismat Samkeppniseftirlitið hefur lengi bent á mikilvægi þess að við setningu laga og reglna hér á landi sé beitt sk. samkeppnismati. Samkeppnismat er aðferðafræði sem OECD hefur beint til aðildarríkja að nýta til að koma auga á samkeppnishindranir í regluverki. Með því að komast hjá og ryðja úr vegi slíkum hindrunum er hægt að opna markaði, efla samkeppni og draga úr reglubyrði. Til að stuðla að frekari innleiðingu samkeppnismats við íslenska laga- og reglugerðarsetningu hélt Samkeppniseftirlitið velheppnaða vinnustofu þann 17. febrúar sl. með stjórnendum og starfsmönnum ráðuneyta og stofnana sem koma að mótun og setningu regluverks. Á vinnustofunni var m.a. farið ítarlega yfir leiðbeiningar OECD um beitingu samkeppnismats (Competition Assessment Toolkit). Samkeppnismati er ekki einungis hægt að beita við undirbúning nýrra laga og reglna, heldur er ekki síður mikilvægt að eyða samkeppnishindrunum í gildandi regluverki.Að beiðni íslenskra stjórnvalda og í samstarfi við Samkeppniseftirlitið framkvæmdi OECD ítarlega greiningu á regluverki byggingaiðnaðar og ferðaþjónustu og var skýrsla með niðurstöðum stofnunarinnar birt í lok árs 2020. Tillögur OECD Í skýrslunni setti OECD fram 438 tillögur um breytingar á regluverki, þar af 122 er varða ferðaþjónustu og 316 er varða byggingariðnað. Var það mat OECD að einföldun regluverks sem í tillögunum felast geti leitt til aukinnar landsframleiðslu sem svari til um 1% af vergri landsframleiðslu. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að skjóta styrkari stoðum undir ferðaþjónustu. Samkeppni í flugi og allri atvinnustarfsemi sem tengist rekstri Keflavíkurflugvallar og öðrum mikilvægum innviðum er forsenda öflugrar ferðaþjónustu hér á landi. Að sama skapi er einföldun regluverks í byggingariðnaði til þess fallin að draga úr húsnæðiskostnaði. Einföldun skipulagsreglna og ferla við undirbúning og útgáfu byggingarleyfa eru liður í þessu. Núverandi ríkisstjórn hefur lagt áherslu á einföldun regluverks. Síðasta haust kynnti ríkisstjórnin jafnframt svokallaðan húsnæðispakka sem m.a. er ætlað að lækka húsnæðiskostnað. Liður í þeim aðgerðum er að einfalda regluverk á þessu sviði. Framangreindar tillögur OECD geta komið að góðum notum í þessum aðgerðum, en tillögunum hefur ekki verið hrint í framkvæmd nema að litlum hluta. Á þessum sviðum, sem og ýmsum öðrum sviðum atvinnulífsins er tækifæri til að gera betur, auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og þar með stuðla að virkari samkeppni öllum til heilla. Höfundar eru Margrét Einarsdóttir, stjórnarformaður Samkeppniseftirlitsins og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samkeppnismál Páll Gunnar Pálsson Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira