Loftslagssvindl eða hrein og klár vankunnátta frambjóðanda Miðflokksins? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 25. febrúar 2026 12:02 Það er alltaf hressandi að lesa greinar sem þora að „segja sannleikann“, eða í það minnsta þá útgáfu af honum sem passar best á baksíðu bjórmottu. Grein stjórnmálafræðingsins og verðandi borgarstjórnarkandidats Miðflokksins, Lárusar Bl. Sigurðssonar, er dýrðlegt dæmi um það þegar sjálfstraust mætir vankunnáttu í hringekju lýðskrumsins. Hinn meinti „blekkingarvefur“ Höfundur talar um „vandamálafræðinga“ sem búi til vandamál til þess eins að hirða af okkur peningana. Það er merkileg nálgun að kalla þúsundir vísindamanna og alþjóðlegar stofnanir „vandamálafræðinga“. Ef við fylgjum þessari röksemdafærslu, eru læknar þá „sjúkdómafræðingar“ sem búa til krabbamein til að tryggja sér vinnu? Og eru slökkviliðsmenn þá „eldfræðingar“ sem kveikja í húsum til að réttlæta kaup á nýjum slökkviliðsbílum? Það hlýtur að vera notalegt að búa í hugarheimi þar sem raunverulegar áskoranir mannkyns eru bara hugarfóstur fólks með of mörg háskólapróf. Sjö sentímetrar og sæluvímur Greinarhöfundur viðurkennir, í örlæti sínu, að lofthiti hafi hækkað „lítillega“ og sjórinn hækki um „nokkra sentimetra“. Hann afgreiðir þetta með því að þetta sé „enginn heimsendir“. Það er gott að vita að við eigum svona sjálfsöruggan spámann í okkar röðum. Staðreyndirnar sem „vandamálafræðingarnir“ (einnig þekktir sem vísindamenn) vinna með eru hins vegar aðeins óþægilegri en kosningaloforð Miðflokksins: Meðalhiti jarðar hefur nú þegar hækkað um u.þ.b. 1,2°C frá iðnbyltingu (og fer áfram hækkandi), en á Íslandi og við norðurslóðir er hækkunin mun hraðari, allt að þrefalt meiri. Sjávarmál hefur ekki bara hækkað um „nokkra sentimetra“ í fortíðinni; það hækkar nú um u.þ.b. 4,5 mm á ári og fer hraðinn vaxandi. Spár gera ráð fyrir allt að 0,5 til 1,0 metra hækkun fyrir lok aldarinnar ef ekkert er að gert. Fyrir eylönd og strandbyggðir (eins og t.d. Reykjavík, þar sem höfundur býður sig fram) er einn metri ekki „smávægileg sveifla“ heldur efnahagslegt og innviðalegt skipbrot. Það skiptir víst engu máli að þessir „fáu sentimetrar“ og þessi „litla hækkun“ séu nú þegar að breyta vistkerfum, bræða jökla sem eru okkar helsta auðlind og valda öfgafyllra veðurfari sem kostar samfélög milljarða í tjóni. En jú, af hverju að hlusta á mælitæki og raungögn þegar við höfum stjórnmálafræðing Miðflokksins sem finnst þetta bara vera hugarórar og svindl? ETS-kerfið og einangrunarparadísin Hápunkturinn er þó tillagan um að segja okkur einhliða úr ETS-kerfinu og „benda stolt“ á að við séum umhverfisvænust í heimi. Þetta er eins og að mæta á fótboltavöll, neita að fylgja reglunum um rangstöðu, en krefjast þess samt að fá að vera með í deildinni, og verða svo móðgaður þegar maður er rekinn út af. Að segja Ísland eiga að segja sig frá þessum samningum lýsir ekki bara vanþekkingu á loftslagsmálum, heldur algjöru skilningsleysi á því hvernig alþjóðaviðskipti og EES-samningurinn virka hjá hinum meinta svokallaða stjórnmálafræðingi. En hey, hver þarf útflutningsmarkaði eða alþjóðlegt traust þegar maður getur staðið keikur á eyjunni sinni, „stoltur“ af því að skilja ekki samhengi hlutanna? Að lokum Það getur vissulega kostað okkur eitthvað að takast á við loftslagsbreytingar, það er rétt. En það er dýrara að láta eins og þær séu ekki til. Að kalla vísindalegar staðreyndir „svindl“ er ekki hugrekki; það er flótti frá raunveruleikanum. Ef þetta er stefnan sem Miðflokkurinn ætlar að bjóða fólki upp á, þá er ljóst að „lausnirnar“ þeirra verða jafnmikill tilbúningur og vandamálin, sem þeir reyna svo innilega að afneita, eru raunveruleg. Greinarhöfundur er í loftslagshópnum París 1,5sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Mest lesið Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun