Um samgönguáætlun Þórhallur Borgarsson skrifar 25. febrúar 2026 10:30 Undanfarið hafa birst vandaðar umfjallannir um samgönguáætlun innviðarráðherra, bæði í Austurglugganum ( agl.is ) og á RÚV. Þessar umfjallannir hafa dregið framm í dagsljósið ýmis atriði í þessari áætlun sem standast illa og á köflum einfaldlega ekki skoðun. Bara þær breytingar sem þarf að gera á aðalskipulagi varðandi Fljótagöng taka það langan tíma að þó að engar athugasemdir komi fram á auglýsingatímanum stenst tímaramminn sem settur er fram ekki. Eins þarf að vina deiliskipulög og hugsanlega umhverfismat á framkvæmdinni sem seinkar framkvæmdum enn frekar. Þann 17. febrúar veltir Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður SSA upp þeirri spurning hvort skipun Samgönguráðs sé fagleg og hafin yfir allan vafa. Við skoðun á því virðist það nú því miður ekki vera svo. Þann 18. febrúar segir Jónína Brynjólfsdóttir forseti sveitarstjórnar Múlaþings að Innviðarráðherra hafi beinlínis gefið rangar eða í besta falli villandi upplýsingar við framlagningu samgönguáætlunar hvað varðar tímaramma Fljótaganga. Ekki verður betur séð við skoðun á þeim gögnum sem koma frá Vegagerðinni en það eigi við rök að styðjast. Þann 20. febrúar segir síðan Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður Umhverfis og Samgöngunefndar Alþingis að hún hafi treyst orðum ráðherra og talið að hann hafi verið að segja satt og rétt frá þegar hann kynnti samgönguáætlun fyrir nefndinni. Auðvitað treysti hún orðum ráðherra. Hún eins og allir aðrir gerir einfaldlega ráð fyrir og treystir því að ráðherra stundi vandaða og góða stjórnsýslu. Að sjálfssögðu er það ákveðið áfall þega síðan kemur á daginn að svo virðist ekki vera. Það er því ekki óeðlileg krafa sem Jens Garðar Helgason þingmaður Sjálfsstæðisflokksins og nefndarmaður í Umhverfiso g Samgöngunefnd setur framm um að Innviðaráðherra komi fyrir Umhverfis og Samgöngunefnd Alþingis til að svara fyrir það sem upp er talið. Það er jú hlutverk Alþingis að veita framkvæmdavaldinu aðhald. Eins er ekkert athugavert við það að Stjórnskipunar og Eftirlitsnefnd Alþingis skoði hvort Innviðaráðherra hafi farið frammúr þeim heimildum sem hann hefur í þeim undirbúningi fyrir Fljótagöng sem hafin er að því sem best verður séð án allara heimilda frá Alþingi. Það hefur verið stefna Múlaþings fram til þessa að skifta sér ekki af framkvæmdum eða skipulögum í öðrum sveitarfélögum. Í ljósi atburða síðustu mánaða varðandi Samgönguáætlun er ljóst að það þarf að endurskoða þá stefnu. Höfundur er varaformaður Umhverfis og Framkvæmdaráðs Múlaþings. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samgönguáætlun Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar