Reykjavíkurleiðin - ný nálgun að betri leikskóla Helga Þórðardóttir skrifar 22. febrúar 2026 12:01 Undanfarna níu mánuði hef ég tekið þátt í vinnu stýrihóps sem hafði það megin hlutverk að koma með umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla og samtímis standa vörð um faglegt leiksksólastarf og setja öryggi barna í forgang. Einnig var mikilvægt að auka fyrirsjánleika fyrir leikskólasamfélagið í heild sinni sem og fjölskyldur - ásamt því að draga úr fáliðunardögum og ófyrirséðum lokunum á leikskólum. Í vinnu okkar gerðum við okkur grein fyrir því að við þyrftum að gæta hagsmuna margra, leikskólastarfsfólks, barnafjölskyldna og barna, þess vegna lögðum við mikla áherslu á samráð og samtal. Víðtækt Samráð við hagsmunahópa Eitt flóknasta verkefnið var að gera úrbætur á gjaldskrá leikskóla og taka þannig betur mið af raunverulegum aðstæðum barnafjölskyldna í borginni. Þess vegna var ákveðið að stokka upp gamalt og úrelt afsláttarkerfi sem mætti ekki foreldrum á jafnræðisgrundvelli út frá fjárhagslegri stöðu þeirra og aðstæðum. Eftir fjölda funda og samráð við fjölmarga, voru lagðar fram tillögur um nýtt fyrirkomulag í reykvískum leikskólum ásamt nýrri og endurættri gjaldskrá. Tillögurnar voru settar í víðtækt samráðsferli og þær birtar í samráðsgátt Reykjavíkurborgar í Október síðastliðinn. Hátt í tvö hundruð umsagnir bárust í samráðsgáttina. Margar umsagnirnar voru jákvæðar en líka var bent á ýmsa ágalla. Við rýndum þessar umsagnir og lögðumst enn og aftur yfir töflur og útreikninga með starfsfólki skóla-og frístundasviðs. Niðurstaða þeirrar vinnu voru sjö megintillögur ásamt gjörbreyttum gjaldskrártillögum. Að því loknu kynntum við tillögurnar fyrir hagaðilum og áttum í gagnlegu samtali sem skilaði enn betri útfærslum á því sem komið var. Gjaldfrjáls leikskóli 36 stundir á viku Allir foreldrar fá gjaldfrjálsan leikskóla fyrir börn sín í 36 stundir á viku - sem er fyrsta skrefið í því að festa leikskólann í sessi sem fyrsta skólastigið. Gjald fyrir 38 tíma vistun verður mjög hóflegt, aðeins 7000 krónur á mánuði,auk fæðisgjalds. Þetta er umtalsvert lægra en í fyrri tillögum og var tekið sérstaklega tillit til athugasemda foreldra að viðhöfðu ítarlegu samráði. Gjaldið hækkar svo í 2.750 krónur á hálftíma frá 38 til 40 stunda og hæst fer það í 4.000 krónur á hálftíma ef vistun er frá 40 - 42,5 tímum á viku. Opnunartími leikskóla helst óbreyttur og áfram verður hámarks dvalartími barna 42,5 stundir. Nýir afsláttarflokkar eru settir inn fyrir þau sem þurfa lengri vistun - og eru sérstaklega hannaðir til að styðja við einstæða foreldra og tekjulág heimili. Engar kvaðir eru á foreldrum um að stytta vistunartíma - en hins vegar eru þeir hvattir til að stytta vistunartíma barna sinna og sérstaklega bent á föstudagseftirmiðdaga. Meirihluti foreldra mun líklega sjá leikskólagjöld lækka - sér í lagi þeir sem eru með 40 stunda vistunartíma eða minna. Gjald fyrir skráningardaga hækkar og verður nú 5000 krónur. Þess vegna eru foreldrar hvattir til að kynna sér nýja gjaldskrá á vef Reykjavíkurborgar https://reykjavik.is/gjaldskra-reiknivel þar sem er að finna reiknivél sem auðveldar foreldrum að finna út hvað leikskólagjaldið verður í nýrri gjaldskrá sem á að taka gildi í apríl. Fleiri tillögur sem bæta náms og starfsaðstæður í leikskólum Lagt er til að leikskóladagurinn verði skipulagður þannig að unnið verði með áherslur skólanámskrár innan tilgreinds tíma sem nemur fimm til sex stundum á dag. Með því verður skipulag leikskóladagsins skýrara fyrir foreldra. Aukin áhersla mun verða lögð á systkina sameiningu - þar sem því verður viðkomið í stóru innritun leikskóla sem fer fram í mars. Einnig var ákveðið að ráða til starfa umsjónarmenn fasteigna í leikskólum sem hafa yfirumsjón með leikskólahúsnæði ásamt því að sjá um minniháttar viðhald og önnur viðvik. Í fyrstu verða ráðnir tveir umsjónarmenn leikskólahúsnæðis og þeim síðan fjölgað ef þörf krefur. Það á að efla íslenskukennslu fyrir starfsfólk leikskóla sem hefur ekki íslensku að móðurmáli. Gert verður ráð fyrir auknum kostnaði vegna afleysinga þegar starfsfólk er í íslenskunámi á vinnutíma. Búa til hvata fyrir starfsfólk til að bæta sig í íslensku. Búa til viðmið um samsetningu starfsfólks á hverri deild með tilliti til íslenskukunnáttu. Blíð byrjun-Lagt er til að leikskólastjórum verði heimilt að ráða inn starfsfólk í leikskóla án þess að börn séu sett í umsjá starfsmanns í tvo daga við upphaf ráðningar svo að starfsfólk eigi þess kost að fá námskeið og nýliðaþjálfun. Að lokum er lagt til að leikskólum Reykjavíkurborgar verði lokað í einn dag í vetrarleyfi í febrúar 2027. Aðgerðin miðar að því að samræma skipulag og skóladagatöl í leik- og grunnskólum Reykjavíkurborgar. Allar þessar aðgerðir voru samþykktar á síðasta borgarstjórnarfundi og fara því í vinnslu. Það má líka geta þess að í haust fjölguðum við mannauðsráðgjöfum fyrir leikskóla til að styðja við starfsmannaráðningar og til að halda betur utan um starfsfólk leikskóla. Við fjölguðum leikskólaráðgjöfum til að styðja enn betur við faglegt starf í leikskólu. Einnig var auglýst eftir fleiri talmeinafræðingum og sálfræðingum til að styðja enn frekar við snemmtæka íhlutun. Það er trú mín og von að þessar aðgerðir muni verða til góðs fyrir leikskólasamfélagið. Ég vil þakka starfsfólki leikskóla fyrir þolinmæðina og þeirra mikilvæga starf. Höfundur er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík og formaður skóla- og frístundaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helga Þórðardóttir Leikskólar Reykjavík Flokkur fólksins Borgarstjórn Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun