Skilar Kópavogur auðu í húsnæðismálum? Finnbjörn A. Hermannsson skrifar 20. febrúar 2026 14:02 Það vakti athygli að bæjarráð Kópavogs hafnaði í síðustu viku umsókn Bjargs Íbúðafélags um 220 milljón króna stofnframlag til byggingar á 24 íbúðum fyrir tekjulágar og eignalitlar fjölskyldur í sveitarfélaginu. Þetta eru kaldar kveðjur til þeirra hundruða lágtekjufjölskyldna í Kópavogi sem eru á biðlista eftir íbúð hjá Bjargi. Frá því lög um almennar íbúðabyggingar voru sett árið 2016 hefur Bjarg íbúðafélag byggt um 1.100 íbúðir þar af um 660 í Reykjavík. Þannig hafa um þrjú þúsund manns fengið öruggt húsnæði til framtíðar. Kópavogur sem er næst stærsta sveitarfélag landsins hefur hins vegar skilað auðu og ekki veitt Bjargi brautargengi til byggingar á einni einustu íbúð. Kópavogur hafnar samstarfi við Bjarg Frá árinu 2018 hefur Bjarg Íbúðafélag ítrekað óskað eftir samstarfi við Kópavogsbæ um uppbyggingu á óhagnaðardrifnum leiguíbúðum. Sextán sveitarfélög um allt land hafa stutt við uppbyggingu með veitingu stofnframlags og þannig komið til móts við tekjulágt fólk í sínu sveitarfélagi um öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði. Stofnframlag er lán sem er að fullu endurgreitt og verðtryggt miðað við þróun íbúðaverðs. Stofnframlag sveitarfélags getur verið í formi fjárframlags, lóðar, afsláttar eða niðurfellingar gjalda. Bjarg hefur hins vegar ekki fengið úthlutað lóðum í Kópavogi en þar hefur bærinn borið fyrir sig að byggingarréttur þurfi að vera seldur á markaði til að tryggja jafnræði milli byggingaraðila. Til að mæta þessu sjónarmiði óskaði Bjarg nýverið eftir stofnframlagi frá Kópavogsbæ til uppbyggingar í Hallarhvarfi, á lóð sem keypt var á markaðsverði. Beiðni Bjargs hefur nú verið hafnað í bæjarráði og ekki má skilja niðurstöðuna öðruvísi en að bærinn hafni stuðningi við uppbyggingu á óhagnaðardrifnu leiguhúsnæði sem tryggir viðráðanlega leigu og húsnæðisöryggi lágtekjufólks á vinnumarkaði, jafnvel þó greitt sé fullt markaðsverð fyrir lóðir. Sveitarfélögin verða að leggja sitt af mörkum Árið 2022 voru sett metnaðarfull markmið um uppbyggingu 35 þúsund íbúða á árunum 2023-2032 af hálfu ríkis og sveitarfélaga. Sérstök áhersla var lögð á að bregðast við erfiðum aðstæðum á húsnæðismarkaði og sammæltust aðilarnir um að tryggja uppbyggingu hagkvæmra íbúða á viðráðanlegu verði og að hlutfall þeirra verði að jafnaði um 30% nýrra íbúða. Jafnframt yrði tryggt að 5% nýrra íbúða yrðu félagsleg húsnæðisúrræði. Ljóst er að metnaðarfull áform hafa ekki gengið eftir og ástæðan er fyrst og fremst sú að sveitarfélög hafa ekki tryggt nægjanlegt framboð lóða eða veitt stofnframlög til að styðja við uppbygginguna. Kostnaðurinn af húsnæðisvandanum er ekki einungis borinn uppi af leigjendum heldur hefur aðgerðaleysið ýtt undir spennu á leigumarkaði og stuðlað að hærri verðbólgu og vaxtastigi. Stöðugleiki á húsnæðismarkaði er þannig hagsmunamál samfélagsins alls. Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Höfundur er forseti ASÍ og formaður stjórnar Bjargs, íbúðafélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnbjörn A. Hermannsson Kópavogur Húsnæðismál Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira