Sport

Sló 24 ára gamalt heims­met sem var sett á fæðingar­degi hennar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Keely Hodgkinson glímdi við meiðsli eftir að hafa unnið Ólympíugull í átta hundruð metra hlaupi en er komin aftur á beinu brautina.
Keely Hodgkinson glímdi við meiðsli eftir að hafa unnið Ólympíugull í átta hundruð metra hlaupi en er komin aftur á beinu brautina. getty/Martin Rickett

Enska hlaupakonan Keely Hodgkinson sló í gær 24 ára gamalt heimsmet í átta hundrað metra hlaupi innanhúss.

Hodgkinson kom í mark á einni mínútu og 54,87 sekúndum á móti í Liévin í Frakklandi í gær. Hún sló þar með heimsmet hinnar slóvensku Jolöndu Ceplak, sem hafði staðið í 24 ár, um eina sekúndu. Ceplak setti metið 3. mars 2002, sama dag og Hodgkinson kom í heiminn.

Hodgkinson er aðeins annar Bretinn sem á núgildandi heimsmet í frjálsum íþróttum. Heimsmet Jonathans Edwards í þrístökki hefur staðið frá 1995.

Eftir erfiða tíma, í kjölfar Ólympíutitilsins í átta hundruð metra hlaupi á leikunum í París 2024, hefur Hodgkinson byrjað þetta ár af krafti.

Hún hljóp átta hundruð metrana á 1:56,33 á breska meistaramótinu fyrir nokkrum dögum og sló svo heimsmetið í gær eins og hún hafði spáð fyrir um. 

„Mér líður eins og ég eigi að slá þetta met,“ sagði Hodgkinson eftir hlaupið í síðustu viku. Hún stóð sannarlega við stóru orðin og er nú heimsmethafi í átta hundruð metra hlaupi innanhúss.

Heimsmetið í átta hundruð metra hlaupi utanhúss (1:53,28) hefur staðið frá 1983 og er í eigu Jarmilu Kratochvilova frá Tékklandi. Besti tími Hodgkinsons utanhúss er 1:54,61.

Framundan er Evrópumótið innanhúss sem verður haldið í Póllandi í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×