Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. febrúar 2026 12:45 Síðasta tímabil var martröð að sögn Lewis Hamilton en hann er jákvæður fyrir tímabilið 2026 sem hefst eftir rúmar tvær vikur. getty/Joe Portlock Lewis Hamilton kveðst fullur bjartsýni fyrir tímabilið 2026 í Formúlu 1 þrátt fyrir að síðasta tímabil hafi verið hans versta á ferlinum.
Sjöfaldi heimsmeistarinn Hamilton gekk í raðir Ferrari fyrir síðasta tímabil. Þar gekk allt á afturfótunum og í fyrsta sinn á ferlinum komst Hamilton ekki á verðlaunapall. Hann endaði í 6. sæti í keppni ökuþóra, einu sæti á eftir samherja sínum hjá Ferrari, Charles Leclerc. Breski ökuþórinn lýsti síðasta tímabili meðal annars sem martröð. Þótt illa hafi gengið í fyrra liggur vel á Hamilton fyrir tímabilið 2026 sem hefst eftir hálfan mánuð. „Ég hef gengið í gegnum ýmislegt og skilið við síðasta ár. Ég varði miklum tíma í að byggja mig upp í vetur og koma líkama og sál á betri stað. Það er langt síðan mér hefur liðið svona vel eftir að hafa endurskipulagt hlutina með liðinu mínu,“ sagði Hamilton en síðustu prófanir fyrir komandi tímabil fara fram í Barein í dag. „Á síðasta ári var ég fastur í bíl sem ég fékk svo að segja í arf. En þetta er bíll sem ég hef átt þátt í að þróa undanfarna 8-10 mánuði, DNA-ið mitt er í honum og ég tengist honum betur.“ Hamilton sagðist jafnframt vera einbeittur fyrir framtíðina með Ferrari þrátt fyrir ófarir síðasta árs og hann hafi verið meðvitaður um að hann gæti þurft að sýna þolinmæði á meðan ítalski bílaframleiðandinn freistaði þess að komast aftur á toppinn. Fyrsta keppni tímabilsins 2026 í Formúlu 1 fer fram í Melbourne í Ástralíu sunnudaginn 8. mars.
Akstursíþróttir Mest lesið Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Sakar konung síðustu Vetrarólympíuleika um svindl Sport „Þetta er ógeðslegt starf“ Körfubolti Vill að Messi segi sannleikann Fótbolti Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð Enski boltinn Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Formúla 1 Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Handbolti „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Íslenski boltinn Sagði 35 sinnum fyrirgefðu við boltastrákinn Enski boltinn Fleiri fréttir Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Tækluðu spurningu sem brennur á öllum eftir fyrstu keppni tímabilsins Verstappen tikkar af golulistanum Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira