Viðskipti innlent

Við­gerð á Grundar­tanga gengur betur en búist var við

Árni Sæberg skrifar
Álver Norðuráls á Grundartanga.
Álver Norðuráls á Grundartanga. Vísir/Vilhelm

Eigandi Norðuráls á Grundartanga gerir ráð fyrir því að álverið munu ná fullum afköstum í lok júlí næstkomandi. Afköst álversins hafa aðeins verið þriðjungur af því sem þau eru vanalega eftir að bilun varð í annarri af tveimur kerlínum þess í október síðastliðnum. Talið var að viðgerð gæti tekið allt að ár.

Bilunin sem varð í tveimur spennum í álverinu á Grundartanga í október stöðvaði framleiðslu í annarri af tveimur kerlínum þess. Afköst álversins eru því aðeins þriðjungur af því sem hún var fyrir bilunina.

Samkvæmt nýjustu áætlunum í nóvember var gert ráð fyrir að framleiðsla í kerlínunni gæti hafist eftir ellefu til tólf mánuði á meðan beðið væri eftir því að nýir spennar væru framleiddir, fluttir til landsins og settir upp. Í tilkynningu frá Norðuráli þá sagði að til skoðunar væri að ráðast í bráðabirgðaviðgerð á biluðu spennunum og þannig ná fullum afköstum fyrr.

Í afkomutilkynningu Century aluminum, móðurfélagi Norðuráls, sem gefin var út í gærkvöldi, segir að nú sé gert ráð fyrir að viðgerðir taki styttri tíma en búist var við. Kerlínan verði sett í gang fyrir lok apríl og álverið muni ná fullum afköstum fyrir lok júlí.

Sólveig Kr. Bergmann, framkvæmdastjóri samskipta og samfélagsmála hjá Norðuráli, kvaðst ekki geta tjáð sig um málið að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×