Viðskipti innlent

Kristín í Komið gott fær sér dag­vinnu

Atli Ísleifsson skrifar
Kristín Gunnarsdóttir hefur stýrt hlaðvarpinu Komið gott ásamt Ólöfu Skaftadóttur síðustu misserin. Þar hefur þeim stöllum verið tíðrætt um stöðu Kristínar á vinnumarkaði, en hún starfaði lengi hjá Eflu en lét þar af störfum á síðasta ári. Hefur þá jafnan verið rætt um að hún hefði „hætt í dagvinnu“.
Kristín Gunnarsdóttir hefur stýrt hlaðvarpinu Komið gott ásamt Ólöfu Skaftadóttur síðustu misserin. Þar hefur þeim stöllum verið tíðrætt um stöðu Kristínar á vinnumarkaði, en hún starfaði lengi hjá Eflu en lét þar af störfum á síðasta ári. Hefur þá jafnan verið rætt um að hún hefði „hætt í dagvinnu“. Landsbankinn

Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Upplýsingamiðlunar, nýrrar deildar á sviði samskipta og menningar hjá Landsbankanum sem tekur til starfa í lok febrúar. Kristín hefur ásamt Ólöfu Skaftadóttur stýrt Komið gott, einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, síðustu misserin.

Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að undir deildina falli samskiptateymi og greiningadeild bankans. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, mun áfram leiða greiningarteymið innan nýrrar deildar.

„Markmið nýrrar deildar er að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans, bæði inn á við og út á við. Upplýsingamiðlun mun bera ábyrgð á samskiptum, almannatengslum, miðlun greininga og ytri fræðslu og styðja þannig við samræmda og skýra rödd Landsbankans í samfélagsumræðu. Á sviði Samskipta og menningar eru fyrir mannauðsmál, markaðsmál og rekstur fasteigna bankans.

Una Jónsdóttir mun áfram stýra greiningardeild bankans. Vísir/Vilhelm

Kristín hefur víðtæka reynslu af samskiptum á breiðum grunni. Hún hefur starfað á mörkum fyrirtækja og fjölmiðla og unnið náið með stjórnendum að mótun orðræðu og stefnumiðaðra samskipta. Undanfarin ár var hún markaðs- og samskiptastjóri hjá EFLU þar sem hún bar ábyrgð á innri og ytri samskiptum, leiddi teymi og sinnti stefnumótun, fjölmiðlasamskiptum og ritstjórnarlegri ábyrgð á ársskýrslu. Kristín hefur jafnframt starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði samskipta, ímyndarmála og opinberrar umræðu, auk þess að vera meðstjórnandi hlaðvarpsins Komið gott og álitsgjafi í fjölmiðlum.

Kristín er með MA-gráðu í hönnun og sjónrænum samskiptum frá Universität der Künste í Berlín og stundar nú nám til MA-gráðu í Digital Innovation and Strategic Leadership við Hyper Island Stokkhólms/Teesside háskólann,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×