Fyrir hvern er velferðarkerfið? Sigurður Sigurðsson skrifar 21. febrúar 2026 08:00 Ríkið á ekki aukapening. Það á aðeins skattfé – og siðferðilegar skyldur til að verja því fyrst og fremst í þágu þeirra sem eru minnimáttar og geta síst varið sig sjálfir. Í umræðunni um rausnarlega aðstoð við atvinnulífið, gleymist oft einföld spurning: Hverjir eiga að vera í forgangi þegar fjárhagslegt svigrúm ríkisins er lítið? Eru það fyrirtæki sem starfa í sveiflukenndu hagkerfi – eða börn, eldri borgarar og öryrkjar sem reiða sig alfarið á opinbera þjónustu? Fyrir hvern er velferðarkerfið? Skylda ríkisins er ekki valkvæð Markaðurinn byggir á áhættu og umbun. Velferðarkerfið byggir á ábyrgð og lagaskyldu. Ríkið hefur lagalegar og siðferðislegar skyldur til að tryggja börnum menntun, öldruðum umönnun og fötluðu og langveiku fólki aðgang að heilbrigðisþjónustu. Það er ekki „góðvild“ – það er mikilvægasta grundvallarhlutverk hins opinbera. Þegar opinberir fjármunir eru af skornum skammti, eða ríkið búið að skuldsetja sig of mikið verður forgangsröðun ríkisins að endurspegla þessar ófrávíkjanlegu skyldur. Það er ekki hægt að tala um aðhald í velferðarkerfinu á sama tíma og ríkissjóður er reiðubúinn að axla markaðsáhættu einkaaðila með óútskýrðum myndarskap. Hverjir bíða? Raunveruleikinn er sá að fólk bíður núna mjög lengi á göngum bráðadeildar Landspítalans. Eldri borgarar bíða sárlega eftir hjúkrunarrými og hafa gert mjög lengi. Öryrkjar bíða eftir úrræðum. Foreldrar barna með sérþarfir berjast við kerfið mánuðum og jafnvel árum saman. Á bráðadeild á fólk, börn og fullorðnir, ekki að bíða dögum eða vikum saman eftir innlögn og aldrað fólk á ekki að bíða árum saman eftir hjúkrunarrými. Þetta er ekki spurning um þægindi. Þetta er spurning um reisn og lagaskuldbindingar ríkisins. Tvö kerfi – raunveruleg hætta Í litlu samfélagi eins og okkar er elítan ekki stór í alþjóðlegum samanburði – en hún er samt áhrifamikil, áhrif sem almenningur óttast mikið. Hún hefur fjármagn, tengsl og oft eitraðan aðgang - sem veikir traustið. Enginn í þeirri stöðu virðist þurfa að bíða lengi eftir heilbrigðisþjónustu. Allavega hafa fjölmiðlar ekki bent á það. Þeir sem hafa bolmagn geta leitað annað – jafnvel erlendis, en almenningur hefur ekki þann kost. Við megum ekki þróast í átt að samfélagi þar sem í reynd verða til tvö heilbrigðiskerfi: eitt fyrir þá sem hafa ráð og annað fyrir hina. Uppbygging á Nýjum Landspítala er risaverkefni og á að styrkja almenna heilbrigðisþjónustu fyrir alla í landinu. En traust almennings byggir hinsvegar á því að aðgengi og forgangsröðun sé gegnsæ og jöfn og að allir, sama hvar þeir eru staddir á mælikvarða efnahags eða þjóðfélagsstöðu, fái jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustunni. Ætli sé hægt að treysta því? Vilja auðmenn og elítan deila gangaplássinu á bráðadeildinni með fólkinu? Um leið og kerfið færi að þjónusta elítuna sér með forgangi að grunn- og heilbrigðisþjónustu - og almenningur þurfi á sama tíma að bíða á gólfinu á bráðamóttökunni eins og nú er ástatt - þá er ríkið búið að bregðast þjóðinni. Ef almenningur fer að upplifa að forgangur ráðist af stöðu og tengslum, þá er það ekki aðeins siðferðilegt vandamál – heldur samfélagslegt sprengiefni. Forgangsröðun sýnir hver við erum Á Alþingi eru fjárlög samþykkt. Þar birtist raunveruleg forgangsröðun – ekki í orðum heldur í tölum, þó tölur um Nýja Landspítalann séu felldar inn í kostnað við heilbrigðiskerfið. Ef ríkissjóður hefur bolmagn til að grípa inn í þegar stór fyrirtæki lenda í vanda, eins og nýlega kom fram í fréttum, þá hlýtur hann að hafa bolmagn til að tryggja að: enginn bíði óþarflega á bráðadeild, enginn aldraður sitji fastur á sjúkrahúsi vegna skorts á hjúkrunarrými, engin fjölskylda lifi árum saman í óvissu um þjónustu við fatlað barn. Annars erum við að senda skýr skilaboð um hvað vegur þyngst - þegar skattpeningum er úthlutað. Velferð fyrst – alltaf Við getum haft sterkt atvinnulíf og öflugt velferðarkerfi. Það er ekki andstæða. En þegar á reynir og svigrúmið er þröngt, þá má ekki ruglast á forgangsröðinni. Ríkið er ekki stofnað til að verja arðsemi einkarekstrar. Það er stofnað til að verja fólk. Börn geta ekki beðið. Veikt fólk getur ekki beðið. Aldraðir sem hafa greitt skatta alla ævi eiga ekki að bíða í óvissu um grunnþjónustu eins og verið hefur. Ef við förum að samþykkja að þeir sem minnst mega sín bíði lengur en þeir sem mest hafa, þá erum við ekki aðeins að breyta fjárhagslegri forgangsröðun – við erum að breyta siðferðilegum grunni samfélagsins og brjóta lög og reglur sem Alþingi hefur sett. Ríkið á ekki aukapening. Það á aðeins forgangsröðun. Og sú forgangsröðun á að vera skýr og óumdeilanleg: Þeir sem minnst mega sín – það á skilyrðislaust að sinna þeim fyrst. Höfundur er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um betra samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Mest lesið Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar