74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. febrúar 2026 07:21 Flestir fasteignasalar segja fasteignamarkaðinn kaupendamarkað. Vísir/Vilhelm Um 95 prósent fasteignasala telja fasteignaverð stöðugt eða fara lækkandi og meirihlutinn segir markaðinn enn hagfelldan kaupendum. Undirboð hafa aukist á höfuðborgarsvæðinu og 74 prósent auglýstra íbúða seldust á undirverði í desember.
Frá þessu greinir í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Alls var 1.080 kaupsamningum þinglýst í desember, þar af 319 samningum um fyrstu fasteignakaup. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,7 prósent í janúar eftir að hafa staðið í stað eða lækkað í þrjá mánuði. Íbúðaverð hækkaði um 2,36 prósent að nafnvirði milli janúar 2025 og janúar 2026 en vegna verðbólguþróunar hefur raunverð haldið áfram að lækka. Íbúðaverð hefur lækkað um 2,67 prósent að raunvirði undanfarna tólf mánuði. Samkvæmt skýrslunni seljast nýjar íbúðir nú í auknum mæli undir auglýstu verði og hefur hlutfallið ekki verið hærra síðan um mitt ár 2023. Um 11.600 kaupsamningum var þinglýst árið 2025, þegar þrettánda hver íbúð gekk kaupum og sölu. „Á höfuðborgarsvæðinu seldust um 7.800 eignir í fyrra, samanborið við tæplega 8.200 eignir árið áður. Þær voru þó nokkuð fleiri en á árunum 2022 og 2023 þegar á bilinu 6.200 til 6.500 eignir voru seldar á svæðinu. Rúmlega þúsund eignir voru seldar á Suðurlandi og á Norðausturlandi í fyrra, en í kringum 500 íbúðir á Vesturlandi. Á Austurlandi seldust 275 íbúðir, tæplega 200 á Vestfjörðum og um 100 á Norðvesturlandi,“ segir í skýrslunni. Hér má finna skýrsluna.
Fasteignamarkaður Neytendur Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira