Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Tómas Arnar Þorláksson skrifar 18. febrúar 2026 19:07 Litir eru á hverfandi hveli í nærumhverfi okkar. vísir Litir í umhverfi okkar eru á hverfanda hveli að mati umhverfissálfræðings sem segir lífið einfaldlega verða leiðinlegra þegar allt er grátt, svart eða hvítt. Byggingar og vörumerki nútímans fari gegn eðli og þörfum mannfólks.
Smáralind skipti í síðustu viku út einkennandi fjögurra lita merki sínum í skiptum fyrir svartan smára sem trónir nú á toppi turns verslunarmiðstöðvarinnar. Smáralind er þar með enn eitt fyrirtækið sem skiptir út lifandi merki í staðinn fyrir nútímalegra útlit. Annað dæmi er til að mynda á nýju húsnæði Landsbankans í miðbænum þar sem litir eru ekki beint í fyrsta sæti. Og í Mjóddinni hefur skærblár vikið fyrir dökkum grænleitum lit. Litadýrðina má berja augum í spilaranum hér að neðan. Litir á hverfanda hveli Nútímavæðing vörumerkja hefur verið töluvert á milli tannanna á fólki síðustu misseri enda eru merkin í nærumhverfi okkar nær daglega. Svo virðist sem að litir séu á hverfanda hveli en flest ný hús sem byggjast nú til dags koma í hvítu, svörtu eða grænu að sögn umhverfissálfræðings. Þegar hús eru byggð í lit eru litirnir gjarnan daufir. „Litirnir hafa verið að minnka svolítið hressilega á síðustu árum. Það hefur gengið sú tískubylgja yfir,“ sagði Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, í samtali við fréttastofu. Hann segir litaleysi samtímans hafa áhrif á líðan fólks. „Það er minna sem ögrar okkur. Þó það sé bara lítil ögrun. Þetta er hlutlaust og eintóna. Þetta verður fyrir vikið, þegar maður er með mikið af þessu, bara leiðinlegt. Í janúar og febrúar, þegar grái, svarti og hvíti liturinn er alveg ríkjandi, þá þurfum við ekki endilega að leggja fleiri lóð á þær vogarskálar.“ Fólk feimið við að skera sig út Hann segist sakna þess að sjá skærari og fjölbreyttari liti. „Fólk hefur verið feimið við að gera það, ólíkt því sem var áður. Þá var fólk miklu gjarnara á því að nota liti sem vöktu mann aðeins upp. Þetta rennur saman í eina mynd, það verður ekkert áberandi. Kennileitin hverfa og svo framvegis og svo framvegis. En hvað veldur þessari þróun? Þetta er bara feimni við að standa út og vera áberandi ef þú ert ekkert endilega að sækjast eftir að vera áberandi. Þannig ef það er verið að skera niður alla liti og svo eru lógóin að skera niður liti og einfaldast og verða minnimalísk þá erum við í rauninni bara að vinna gegn okkar eðli og okkar þörfum í rauninni.“
Umhverfismál Auglýsinga- og markaðsmál Tíska og hönnun Tengdar fréttir Kafað ofan í litleysi íslenska bílaflotans Áttatíu prósent nýskráðra bíla á Íslandi eru gráir, hvítir eða svartir. Bílasali segir greinilegt að Íslendingar telji litríka bíla óheppilega til endursölu. Þá geti djarfari litir kostað kaupendur milljónir aukalega. 13. júlí 2024 07:31 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Sjá meira
Kafað ofan í litleysi íslenska bílaflotans Áttatíu prósent nýskráðra bíla á Íslandi eru gráir, hvítir eða svartir. Bílasali segir greinilegt að Íslendingar telji litríka bíla óheppilega til endursölu. Þá geti djarfari litir kostað kaupendur milljónir aukalega. 13. júlí 2024 07:31