„Við löbbum ekki bara og hrösum um Esjuna“ Lovísa Arnardóttir skrifar 19. febrúar 2026 07:30 Grímur Atlason segir gott að muna að enginn hrasi um Esjuna sjálfa, fólk hrasi um sveinvölur eða steina á leiðinni upp. Þannig sé lífið líka. Aðsend Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir mikilvægt að muna eftir litlu hlutunum sem gleðja mann þegar þetta stóra veldur miklum áhyggjum. Sjóvá og Geðhjálp standa nú fyrir ánægjuátaki til að minna fólk á litlu hlutina. Hann segir átakið aðstoða við stofnun fyrsta Skjólshúss Geðhjálpar.
Tryggingafélagið Sjóvá mun styrkja Geðhjálp um tvær milljónir þegar búið er að skrifa tíu þúsund innsendingar á sérstakan vef um ánægju og hvað veitir fólki ánægju. Grímur segir hvert framlag skipta máli. Geðhjálp vinni núna að því að opna Skjólshús síðar á árinu og fjármagnið fari í það sem og önnur verkefni samtakanna. „Við erum núna í nokkur ár búin að vera með eitthvað sem kallast G-vítamín sem er beintengt þessu,“ segir Grímur. Geðhjálp býður því upp á skammta af G-vítamíni á þorranum; ráðleggingar sem er ætlað að bæta geðheilsu. Markmið átaksins er að efla geðheilsu landsmanna en um leið að fyrirbyggja bresti og verja þau í mótbyr. Átaki Geðhjálpar um G-vítamín lýkur á sunnudag, þegar þorranum lýkur, á konudeginum. Donald Trump og kommúnistar „Þetta átak tekur þá í rauninni við. Það er þessi áhersla á þetta smáa og litla í hversdeginum sem gerir okkur gott. Sumir hugsa Donald Trump, þá líður þeim illa, og aðrir hugsa um einhvern kommúnista og líður illa. En ef maður bara hugsar um eitthvað lítið, eins og kaffibolla með maka sínum eða sund með börnunum, þá er það æfingin í raun. Það er kannski banalt og léttvægt en skiptir á sama tíma miklu máli.“ Grímur segir að þó svo að það sé verið að hvetja til þess að líta til þess smáa sem geti glatt sé ekki verið að hvetja til einhvers konar eitraðrar jákvæðni þar sem fólk eigi að leggja það erfiða alveg til hliðar. „Það á ekkert að loka augunum fyrir því, en þetta smáa skiptir máli. Það má ekki gleyma því að þegar maður er að hugsa um lífið þá er svo auðvelt að sjá Esjuna. Hún er stór, en það er aldrei Esjan sem við dettum um. Við löbbum ekki bara og hrösum um Esjuna eða Bandaríkin, við hrösum um litlar steinvölur“ segir Grímur og að þetta eigi alls ekki að vera „einhver Pollýanna í Pollýönnulandi“. Önnur nálgun fyrir þau sem veik eru Hann segir hvert fjárframlag til Geðhjálpar skipta máli en fyrir hverja færslu sem er skrifuð borgar Sjóvá 200 krónur. Þegar tíu þúsund færslur hafa verið skrifaðar gefur Sjóvá svo Geðhjálp tvær milljónir. „Það skiptir auðvitað öllu máli. Við erum að fara að opna Skjólshús sem er athvarf. Fólk getur komið og dvalið í tvær vikur, það er alternatíf við það sem er í gangi í dag,“ segir Grímur. Athvarfið eigi að vera fyrirbyggjandi og þangað geti fólk leitað þegar það á við einhvers konar geðrænan vanda að stríða, áður en hann verður of stór. „Það er eins og að setja svona nokkur handrið þar sem eru stigar, sko, þannig að maður geti stutt sig við handriðið þegar maður labbar niður. Það er of algengt að við séum bara að labba niður stiga og dettum svo niður af því að það er ekkert handrið og þá erum við alltaf niðri á jörðinni að eyða mjög miklum peningum og tíma, bæði einstaklingar og samfélagið, í einhverjar svona afleiðingar.“ Þess vegna skipti máli að vera orsakamiðaðri. Hann segir Geðhjálp núna vinna að því að kaupa hús en það sé ekki tímabært að segja frá því hvar það er staðsett. Það sé búið að fjármagna kaupin en tilkynnt var í desember að félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra hefðu skrifað undir samstarfssamning við landssamtökin Geðhjálp um stofnun skjólshúss fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana. Um sé að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára þar sem ráðuneytin tvö leggja til samtals 122 milljónir króna á móti 150 til 180 milljóna króna framlagi Geðhjálpar. Fram kom í tilkynningu að stefnt yrði að því að opna húsið á fyrri hluta þessa árs. Grímur segir húsið fyrir fólk sem hafi mögulega áður lent í einhverri krísu og vilji ekki leita til geðdeildar og fyrir fólk sem sé í einhvers konar krísu og vilji ekki leita beint til geðdeildar. „Þetta getur verið fólk sem hefur lent í alveg lent í miklum krísum eða eru kannski í mikilli krísu. En hugmyndin er þetta er nálgun,“ segir hann og að unnið verði eftir ákveðinni hugmyndafræði um bata sem gangi út á að fólk viti sjálft hvað það þurfi. Starfsmenn verði jafningjar Grímur segir að nú sé verið að kaupa húsið og undirbúa starfsmannahópinn. „Það eru allt jafningjar, fólk bara sem er með reynslu,“ segir hann og að þau stefni á að opna í byrjun sumars. „Það er gott að vera í kringum fólk sem hefur gengið einhverja leið sjálf. Það er ekki verið að segja þér til, það er ekkert að segja: heyrðu nú átt þú að, nú förum við út að hlaupa eða nú förum við og eitthvað. Þetta er ekkert svoleiðis. Reynslan annars staðar er að það verður ákveðin breyting, fólk breytist og mörg ná tökum á sínum málum.“ Hann segir þetta til hliðar við hitt kerfið, geðheilbrigðiskerfið, og að Geðhjálp stefni á að hafa húsið opið til að byrja með í þrjú ár og ætli svo að endurskoða málið. „En við teljum að við verðum búin að opna nokkur svona hús eftir þrjú ár af því að þetta mun skila það miklum árangri.“ Hann segir að auk þessa stóra verkefnis sinni ráðgjafar Geðhjálpar ókeypis ráðgjöf, fari um landið og tali um geðheilbrigði. Mikilvægt að staldra við Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, segir verkefnið sprottið frá mælingum á ánægju viðskiptavina. Ánægja þeirra sé „hjartað í því sem þau geri“. „En ánægja er svo miklu meira en mæling á blaði. Hún getur verið augnablikið þegar maður hægir aðeins á sér og tekur eftir litlu hlutunum sem skipta samt svo miklu máli. Bros frá ókunnugum. Að vera hleypt inn í bílaröðina. Kyrrðin í náttúrunni. Eða einfaldlega gott spjall við vin,“ segir Lára. Lára hvertur fólk til að staldra við. Aðsend Hún hvetur fólk til að staldra við og gefa þessum augnablikum gaum. „Að næra geðheilsuna með því að beina athyglinni að því góða og leyfa jákvæðninni að smita út frá sér. Þegar við segjum frá því sem gefur okkur G-vítamín styrkjum við ekki bara okkur sjálf heldur líka samfélagið okkar. Við hjá Sjóvá erum afar stolt af því að leggja þessu málefni lið,“ segir Lára.
Geðheilbrigði Tryggingar Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Góðir straumar á Straumi Menning Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Fleiri fréttir Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“