„Alveg hræðilegt ástand“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 16. febrúar 2026 19:28 Helga S. Ottósdóttir segir ástandið hræðilegt. Vísir/Sigurjón Aldraðir og aðstandendur þeirra segja sorglegt að fólk sé geymt mánuðum saman á Landspítalanum vegna skorts á hjúkrunarrýmum. Þau furða sig á að ekki sé búið að bregðast við ástandinu fyrir löngu síðan. Stjórnandi á stofnun fyrir aldraða segir fólk þar óttast að leggjast inn á spítala vegna hættu á að festast þar inni. Landspítali hefur verið rekin á rauðu viðbúnaðarstigi í næstum eitt og hálft ár. Starfsfólk bráðamóttöku lýsti hamfaraástandi í síðustu viku. Nú bíða um hundrað og fimmtán sjúklingar á spítalanum eftir hjúkrunarrými. Heilbrigðisráðherra hefur boðað aðgerðir og fleiri rými. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum nú síðdegis höfðu yfirvöld nú þegar útvegað sex hjúkrunarrými, þau þurfi hins vegar að vera að lágmarki fimmtíu. Dóttir manns á níræðisaldri sem hefur legið á Landspítalanum í næstum fjóra mánuði vegna þess að ekkert pláss er á hjúkrunarheimili sagði ástandið sorglegt í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Stjórnandi dagdvalar fyrir aldraða tekur undir það og segist þekkja marga sem hafa lokast inni á spítölum vegna skorts á hjúkrunarrýmum. „Ég er með níu einstaklinga sem bíða á heilbrigðisstofnunum eins og Vífilsstöðum, Landakoti eða Landspítala sem eru bara að bíða því það skortir hjúkrunarrými,“ segir Elísa Finnsdóttir, forstöðumaður dagdeilar Sunnuhlíðar. Elísa hefur starfað hjá Sunnuhlíð í um fimm ár.Vísir/Sigurjón Hún segir skjólstæðinga sína hrædda við að að lenda í sambærilegri stöðu. „Þeim finnst rosalega erfitt, eins og eina helgina dettur ein kona. Þau spyrja strax hvar hún er og hún er uppi á Landspítala með beinbrot. Þá vita þau að hún er örugglega ekki að fara koma aftur til okkar,“ segir Elísa. Þannig það er orðin hálfvegis Grýla? Að passa sig að meiða sig ekki svo maður festist ekki inni á spítala? „Já, algjörlega, þetta er hræðilegt. Ég hef verið hérna síðan árið 2021, þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég lendi í þessu. Þetta gerist oft á hverju ári.“ Fréttastofan heldur áfram umfjöllun um vandann í heilbrigðiskerfinu og ef þú hefur reynslu af honum; ert í biðröðinni, hvort sem er heima hjá þér eða á spítalanum, þá viljum við heyra í þér. Þið megið endilega senda okkur línu á ristjórn@visir.is „Hræðilegt ástand“ Eldri borgarar hafa áhyggjur af stöðu mála. „Alveg hræðilegt ástand. Ég gæti ekki hugsað mér verra heldur en það sem maður hlustar á í útvarpi og sjónvarpi,“ segir Helga S. Ottósdóttir sem nýtir dagdeild Sunnuhlíðar. Fanney Davíðsdóttir, sem nýtir einnig dagdeildina, tekur undir með Helgu og segir málið hræðilegt. Einar Sigurðusson finnur til með þeim sem þurfa að bíða á göngum á bráðadeild enda hefur hann reynslu af því. Fanney Davíðsdóttir nýtir dagdeild Sunnuhlíðar.Vísir/Sigurjón „Það er hræðilegt, á Landspítalanum er þetta hræðilegt. Ég hef legið á ganginum þar lengi, heilan dag og meira til,“ segir hann. Þau furða sig á að stjórnvöld hafi ekki brugðist hraðar við í gegnum tíðina. Einar, til vinstri, segist sjálfur hafa þurft að dúsa á göngum Landspítalans.Vísir/Sigurjón „Þetta hefði átt að vera löngu löngu löngu verið byrjað á að gera eitthvað,“ segir Helga. Aðspurð hvað hafi klikkað segir Fanney að það sé langt síðan eitthvað klikkaði. „Þetta er búið að vera að vinda upp á sig í svo mörg ár. Stjórnvöld hættu bara að hugsa um þetta,“ segir hún. Eldri borgarar Hjúkrunarheimili Landspítalinn Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira
Landspítali hefur verið rekin á rauðu viðbúnaðarstigi í næstum eitt og hálft ár. Starfsfólk bráðamóttöku lýsti hamfaraástandi í síðustu viku. Nú bíða um hundrað og fimmtán sjúklingar á spítalanum eftir hjúkrunarrými. Heilbrigðisráðherra hefur boðað aðgerðir og fleiri rými. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum nú síðdegis höfðu yfirvöld nú þegar útvegað sex hjúkrunarrými, þau þurfi hins vegar að vera að lágmarki fimmtíu. Dóttir manns á níræðisaldri sem hefur legið á Landspítalanum í næstum fjóra mánuði vegna þess að ekkert pláss er á hjúkrunarheimili sagði ástandið sorglegt í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Stjórnandi dagdvalar fyrir aldraða tekur undir það og segist þekkja marga sem hafa lokast inni á spítölum vegna skorts á hjúkrunarrýmum. „Ég er með níu einstaklinga sem bíða á heilbrigðisstofnunum eins og Vífilsstöðum, Landakoti eða Landspítala sem eru bara að bíða því það skortir hjúkrunarrými,“ segir Elísa Finnsdóttir, forstöðumaður dagdeilar Sunnuhlíðar. Elísa hefur starfað hjá Sunnuhlíð í um fimm ár.Vísir/Sigurjón Hún segir skjólstæðinga sína hrædda við að að lenda í sambærilegri stöðu. „Þeim finnst rosalega erfitt, eins og eina helgina dettur ein kona. Þau spyrja strax hvar hún er og hún er uppi á Landspítala með beinbrot. Þá vita þau að hún er örugglega ekki að fara koma aftur til okkar,“ segir Elísa. Þannig það er orðin hálfvegis Grýla? Að passa sig að meiða sig ekki svo maður festist ekki inni á spítala? „Já, algjörlega, þetta er hræðilegt. Ég hef verið hérna síðan árið 2021, þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég lendi í þessu. Þetta gerist oft á hverju ári.“ Fréttastofan heldur áfram umfjöllun um vandann í heilbrigðiskerfinu og ef þú hefur reynslu af honum; ert í biðröðinni, hvort sem er heima hjá þér eða á spítalanum, þá viljum við heyra í þér. Þið megið endilega senda okkur línu á ristjórn@visir.is „Hræðilegt ástand“ Eldri borgarar hafa áhyggjur af stöðu mála. „Alveg hræðilegt ástand. Ég gæti ekki hugsað mér verra heldur en það sem maður hlustar á í útvarpi og sjónvarpi,“ segir Helga S. Ottósdóttir sem nýtir dagdeild Sunnuhlíðar. Fanney Davíðsdóttir, sem nýtir einnig dagdeildina, tekur undir með Helgu og segir málið hræðilegt. Einar Sigurðusson finnur til með þeim sem þurfa að bíða á göngum á bráðadeild enda hefur hann reynslu af því. Fanney Davíðsdóttir nýtir dagdeild Sunnuhlíðar.Vísir/Sigurjón „Það er hræðilegt, á Landspítalanum er þetta hræðilegt. Ég hef legið á ganginum þar lengi, heilan dag og meira til,“ segir hann. Þau furða sig á að stjórnvöld hafi ekki brugðist hraðar við í gegnum tíðina. Einar, til vinstri, segist sjálfur hafa þurft að dúsa á göngum Landspítalans.Vísir/Sigurjón „Þetta hefði átt að vera löngu löngu löngu verið byrjað á að gera eitthvað,“ segir Helga. Aðspurð hvað hafi klikkað segir Fanney að það sé langt síðan eitthvað klikkaði. „Þetta er búið að vera að vinda upp á sig í svo mörg ár. Stjórnvöld hættu bara að hugsa um þetta,“ segir hún.
Fréttastofan heldur áfram umfjöllun um vandann í heilbrigðiskerfinu og ef þú hefur reynslu af honum; ert í biðröðinni, hvort sem er heima hjá þér eða á spítalanum, þá viljum við heyra í þér. Þið megið endilega senda okkur línu á ristjórn@visir.is
Eldri borgarar Hjúkrunarheimili Landspítalinn Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira