Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Samúel Karl Ólason skrifar 15. febrúar 2026 08:46 Barack Obama og Donald Trump í jarðarför Jimmys Carter í fyrra. EPA/SAMUEL CORUM Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, tjáði sig í fyrsta sinn en þó með óbeinum hætti, um nýlegt myndband sem Donald Trump, núverandi forseti, deildi á netinu þar sem Obama og Michelle eiginkonu hans var líkt við apa.
Umrætt myndband birti Trump á Truth Social, sínum eigin samfélagsmiðli, en það snerist um samsæriskenningu um að átt hefði verið við kosningavélar í kosningunum í nokkrum mikilvægum ríkjum í forsetakosningunum 2020. Undir lok myndbandsins mátti sjá stutt skot af forsetahjónunum fyrrverandi sem apar. Sá myndbútur hafði verið tekinn úr öðru myndbandi sem birt var á X í fyrra. Það var búið til með gervigreind og sýnir þekkta Demókrata sem dýr og Trump sem ljón, eða konung frumskógarins. Að líkja þeldökku fólki við apa er algengt tungutak og myndmál rasista. Sjá einnig: Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Myndbandið og birting Trumps á því var harðlega gagnrýnd vestanhafs og þar á meðal af þó nokkrum þingmönnum Repúblikanaflokksins. Fyrstu viðbrögð Trump-liða voru að verja myndbandið sem góðlátlegt grín en talskona Trumps sagði myndbandið ekki rasískt og að blaðamenn ættu að hætta að gera sér upp hneykslan og einbeita sér að hlutum sem skipta máli. Trump sagðist ekki hafa séð þann hluta myndbandsins sem hann deildi sem sýndi andlit hjónanna á líkömum apa. „Ég gerði engin mistök,“ sagði Trump og þvertók fyrir það að biðjast afsökunar. Að endingu var myndbandið fjarlægt og sagði Hvíta húsið að ónefndur aðstoðarmaður Trumps hefði birt það á samfélagsmiðlasíðu Trumps. Það var birt seint um kvöld og var færslan ein af tugum annarra um að forsetakosningunum 2020 hefði verið stolið af Trump með umfangsmiklu kosningasvindli, sem er ekki rétt. Skortur á sómakennd Í viðtali í hlaðvarpi spurði Brian Tyler Cohen Obama óbeint út í myndbandið með því að spyrja forsetann fyrrverandi út í umræðuna almennt vestanhafs og hvað gildi fólks í opinberum embættum virtust hafa breyst. Meðal annars vísaði hann til yfirlýsinga um að mótmælendur sem hefðu verið skotnir af útsendurum heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna væru hryðjuverkamenn og vísaði hann einnig til myndbandsins af þeim hjónum. Áhugasamir geta fundið viðtalið í heild hér. Obama svaraði og sagði að eins konar „trúðasýning“ væri að eiga sér stað á samfélagsmiðlum og í sjónvarpi. Að svo virtist sem skortur væri á sómakennd meðal fólks sem hefði áður verið þeirrar skoðunar að embættum ætti að fylgja ákveðin virðing og kurteisi. Þetta sjónarmið væri alveg horfið. "There doesn’t seem to be any shame." Barack Obama said in an interview that a video President Trump posted that depicted Barack and Michelle Obama as apes was part of a "clown show." pic.twitter.com/xqSdqX8ejz— USA TODAY (@USATODAY) February 14, 2026 Obama sagði að flestum Bandaríkjamönnum þætti svona framkoma ekki ásættanleg og að endingu myndu kjósendur fá að segja skoðun sína í kjörklefanum.
Bandaríkin Donald Trump Barack Obama Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Erlent Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Sjá meira