Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Samúel Karl Ólason skrifar 12. febrúar 2026 09:15 Stjórnendum flugmóðurskipsins USS George H.W. Bush og fylgiskipa þess hefur verið sagt að undirbúa ferð til Mið-Austurlanda. Sjóher Bandaríkjanna/John Farren og AP/Evan Vucci Bandaríkjamenn leggja nú línurnar að því að senda annað flugmóðurskip og fylgiflota þess til Mið-Austurlanda. Donald Trump, forseti, sagðist fyrr í vikunni vera að íhuga að senda annað flugmóðurskip í undirbúningi fyrir mögulegar árásir á Íran, ef viðræður við klerkastjórnina þar skila engum árangri.
Trump hefur ekki gefið þá skipun að senda flugmóðurskip af stað en samkvæmt heimildum Wall Street Journal er undirbúningsvinnan þegar hafin. Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytisins eru sagðir hafa sagt stjórnendum flugmóðurskipsins USS George H.W. Bush og fylgiskipum þess að undirbúa ferð til Mið-Austurlanda. Flotinn er nú við æfingar undan austurströnd Bandaríkjanna og gæti flotinn lagt af stað eftir tvær vikur. Bandaríkjamenn hafa þegar sent flugmóðurskipið USS Abraham Lincoln til Mið-Austurlanda, auk annarra herskipa, fjölda herflugvéla og önnur hergögn og loftvarnarkerfi á svæðið. Bandaríkjamenn hafa farið fram á að Íranar hætti auðgun úrans eða að hún fari fram í öðru ríki, svo Íranar geti ekki komið upp kjarnorkuvopnum. Þessu hafnaði klerkastjórnin í nýlegum viðræðum í Óman en til stendur að halda frekari viðræður á næstunni. Hvenær þær eiga að fara fram liggur ekki fyrir. Segist frekar vilja semja en gera árásir Trump fundaði í gær með Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, þar sem þeir töluðu meðal annars um Íran. Eftir fundinn sagði Trump á Turth Social, sínum eigin samfélagsmiðli, að fundurinn hefði verið „mjög góður“. Niðurstaða hans hefði verið sú að viðræður við klerkastjórnina myndu halda áfram og sagðist Trump vilja sjá hvort hægt væri að komast að samkomulagi. Það sagðist Trump vilja. „Ef það er ekki hægt, verðum við bara að sjá hver útkoman verður. Síðast ákváðu Íranir að þeir vildu ekki semja, og þeir urðu fyrir Miðnæturhamrinum, sem fór ekki vel fyrir þá,“ skrifaði Trump. „Midnight Hammer“ var nafn hernaðaraðgerðarinnar þegar Bandaríkjamenn notuðu B-2 Spirit-sprengjuflugvélar til að varpa mjög svo sérstökum sprengjum á neðanjarðarbyrgi þar sem Íranir hafa auðgað úran. Sjá einnig: Bandaríkjamenn gera loftárásir á Írani „Vonandi verða þeir skynsamari og ábyrgari að þessu sinni,“ sagði Trump. Forsetinn íhugaði árásir á Íran þegar öryggissveitir klerkastjórnarinnar gengu mjög svo harkalega fram gegn mótmælendum en þúsundir eru taldir hafa látið lífið. Ekki varð þó af þeim árásum og bað Trump forsvarsmenn varnarmálaráðuneytisins um að veita honum frekari kosti til afgerandi árása. Í samtali við blaðamenn í síðustu viku sagði Trump að hann hefði nægan tíma.
Bandaríkin Donald Trump Íran Ísrael Hernaður Kjarnorkuvopn Tengdar fréttir Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Íranskir sjóliðar um borð í sex vélbyssubúnum hraðbátum reyndu í morgun að stöðva danskt olíuflutningskip, sem siglt er undir bandarískum fána, á Hormuz-sundi í Persaflóa. Stjórnendur skipsins juku hraða þess og komust þannig undan þegar írönsku sjóliðarnir skipuðu þeim að stöðva skipið. Seinna í dag var olíuflutningaskipinu svo fylgt eftir af bandarísku herskipi. 3. febrúar 2026 16:58 Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Æðstiklerkur Íran hótar að hvers konar árás af höndum Bandaríkjamanna gæti hrint að stað svæðisstríði. Spenna milli ríkjanna tveggja hefur aukist til muna eftir miklar óeirðir í Íran síðustu vikur. 1. febrúar 2026 10:25 Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Bandarískur herskipafloti nálgast Íran og hótar Bandaríkjaforseti því að tíminn sé að renna út fyrir írönsk stjórnvöld að semja um kjarnorkuvopnaáætlun þeirra. Íranar segjast reiðubúnir til viðræðna en þeir séu einnig að verjast af festu. 28. janúar 2026 15:00 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira
Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Íranskir sjóliðar um borð í sex vélbyssubúnum hraðbátum reyndu í morgun að stöðva danskt olíuflutningskip, sem siglt er undir bandarískum fána, á Hormuz-sundi í Persaflóa. Stjórnendur skipsins juku hraða þess og komust þannig undan þegar írönsku sjóliðarnir skipuðu þeim að stöðva skipið. Seinna í dag var olíuflutningaskipinu svo fylgt eftir af bandarísku herskipi. 3. febrúar 2026 16:58
Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Æðstiklerkur Íran hótar að hvers konar árás af höndum Bandaríkjamanna gæti hrint að stað svæðisstríði. Spenna milli ríkjanna tveggja hefur aukist til muna eftir miklar óeirðir í Íran síðustu vikur. 1. febrúar 2026 10:25
Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Bandarískur herskipafloti nálgast Íran og hótar Bandaríkjaforseti því að tíminn sé að renna út fyrir írönsk stjórnvöld að semja um kjarnorkuvopnaáætlun þeirra. Íranar segjast reiðubúnir til viðræðna en þeir séu einnig að verjast af festu. 28. janúar 2026 15:00