Alexandra Helga lokar Míu Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. febrúar 2026 14:04 Alexandra hefur ákveðið að loka Míu til að snúa sér að öðrum verkefnum og gefa börnum sínum meiri athygli. Saga Sig Alexandra Helga Ívarsdóttur, athafnakona og eiginkona Gylfa Sigurðssonar, hefur ákveðið að loka barnavöruversluninni Míu. Hún segir reksturinn hafa verið gefandi en krefjandi og því snúi hún sér að öðrum verkefnum. „
Eftir þó nokkra yfirlegu og umhugsun hef ég ákveðið að það sé komið að leiðarlokum í einu skemmtilegasta ferðalagi sem ég hef farið í. Verslunin mín Mía mun því loka á næstu vikum,“ skrifar Alexandra í færslu sem hún birti á Instagram fyrir skömmu. Segir hún að Mía hafi verið „þriðja barnið“ sitt frá því hún opnaði sem netverslun sumarið 2022. Alexandra stofnaði þá netverslunina Móu&Míu með Móeiði Lárusdóttir en þær slitu samstarfinu í nóvmber 2023. Í kjölfarið breytti Alexandra nafninu í Míu og opnaði verslunina í húsnæði í Ármúla 40 sem hún hafði keypt fyrr á árinu. „Þó að verslunarrekstur sé gefandi og skemmtilegur þá er hann á sama tíma krefjandi og nú hef ég ákveðið að snúa mér að öðrum verkefnum ásamt því að gefa hinum tveimur börnunum mínum meiri tíma og athygli,“ skrifar Alexandra í færslunni. Hún hafi á þessu tímabili kynnst „yndislegum hópi viðskiptavina, frábæru starfsfólki, faglegum og flottum birgjum og fleiri aðilum sem með einum eða öðrum hætti lögðu lóð sín á vogarskálarnar í rekstri Míu“ og þakkar þeim öllum fyrir samfylgdina. „Eins og tíðkast þegar verslanir loka þá ætlum við að bjóða vörurnar okkar til sölu á útsöluverðum þar til lagerinn klárast. Við viljum því bjóða ykkur velkomin á rýmingarsölu Míu sem mun standa yfir meðan birgðir endast,“ skrifar hún að lokum.
Tímamót Verslun Börn og uppeldi Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira