Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 15:17 Páll Vilhjálmsson hefur meðal annars þurft að svara fyrir ummæli sín fyrir rétti en var sýknaður. Vísir/Vilhelm Mennta- og barnamálaráðuneytið og undirstofnanir þess hafa á árunum 2018 til 2025 gert ellefu starfslokasamninga og nemur kostnaður vegna þeirra samtals 84,1 milljón króna. Munar þar langmestu um tvo starfslokasamninga sem ráðuneytið sjálft gerði árin 2023 og 2025 sem kostað hafa ráðuneytið samtals tæpar 45 milljónir. Þá gerði Fjölbrautaskólinn í Garðabæ einn starfslokasamning árið 2024 upp á 12,8 milljónir, en það er árið sem skólinn gerði starfslokasamning við Pál Vilhjálmsson framhaldsskólakennara sem rataði í fréttir á sínum tíma.
Þetta má lesa úr svörum mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn Karls Gauta Hjaltasonar, þingmanns Miðflokksins. Karl Gauti sendi sambærilega fyrirspurn um starfslokasamninga og kostnað vegna þeirra á öll ráðuneyti og hafa svör jafnt og þétt verið að berast. Þegar hefur Vísir greint frá svörum átta annarra ráðuneyta, en samtals hefur kostnaður þeirra níu ráðuneyta sem þegar hafa svarað og undirstofnana þeirra numið um 997 milljónum á umræddu tímabili. Nú þegar svör hafa borist frá öllum ráðherrum nema forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra er kostnaðurinn samtals farinn að nálgast einn milljarð. Dýrustu starfslokasamningarnir hjá ráðuneytinu sjálfu Lesa má úr svari mennta- og barnamálaráðherra að tveir starfslokasamningar hafa á undanförnum átta árum verið gerðir í ráðuneytinu sjálfu, annars vegar einn upp á 18,2 milljónir og annar upp á 26,7. Þá hafa verið gerðir níu starfslokasamningar hjá undirstofnunum ráðuneytisins. Þar á meðal er einn starfslokasamningur hjá Barna- og fjölskyldustofu frá árinu 2022, en kostnaður vegna hans nam 11,5 milljónum króna. Þá hafa fimm menntaskólar gert starfslokasamninga á tímabilinu, það eru Borgarholtsskóli, Fjölbrautarskólinn í Garðabæ, Flensborgarskólinn, Menntaskólinn í Kópavogi og Menntaskólinn við Sund. Kostnaður vegna starfslokasamninga hjá umræddum menntaskólum hefur í flestum tilfellum numið innan við fjórum milljónum, og í fjórum tilfellum innan við milljón. Kostnaður vegna eins starfslokasamnings sker sig þó úr. Það er hjá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, FG, sem lesa má úr svörum ráðherra að hafi gert einn starfslokasamning á árinu 2024 sem kostaði skólann 12,8 milljónir. Bloggfærslur Páls sem féllu í grýttan jarðveg Í júní árið 2024 voru sagðar fréttir af því að „einn umdeildasti kennari landsins“ hafi látið af störfum. Það var Páll Vilhjálmsson, sem var framhaldskólakennari í FG, sem hætti störfum eftir að samkomulag náðist milli hans og Kristins Þorsteinssonar skólameistara skólans. Áður höfðu meðal annars þrjátíu kennarar og starfsfólk við skólann lýst andstöðu við málflutning Páls Vilhjálmssonar sem hann hafði haft uppi á bloggsíðu sinni. Skólastjóri sagði skrif Páls hafa valdið skólanum tjóni og kennari sagði skrifin hafa áhrif á andrúmsloftið á kennarastofunni. Þá rötuðu ummæli Páls sem hann hafði látið falla um fréttamanninn Helga Seljan einnig í fréttir og þótti sumum nóg um. Í viðtali við Vísi sumarið 2024 sagði Páll að upp hafi komið nokkur mál sem ógnað hafi starfsöryggi hans. „Ég bloggaði að transhugmyndafræðin byggði á ranghugmyndum og þá reis þetta sama wokeliðið upp og heimtaði að ég myndi missa vinnuna. Ég er íhaldssamur hægri maður. Við erum tveir við skólann, ég og húsvörðurinn. Skólastjóri er vinstri maður. Ég hef verið að snerta á málum sem vinstri menn bera fyrir brjósti og er hluti af þessari woke-hugmyndafræði. Og svo um byrlunar og símastuldsmál, sem margir hefðu viljað að ég hefði sleppt,“ sagði Páll meðal annars. Svör barna- og menntamálaráðherra byggja á gögnum fyrir árin 2018 til 2025 líkt og kallað var eftir í fyrirspurninni frá þingmanninum, en þess má geta að í janúar var ráðist í skipulagsbreytingar í ráðuneytinu og var sex starfsmönnum sagt upp í ráðuneytinu í tengslum við breytingarnar.
Rekstur hins opinbera Kjaramál Stjórnsýsla Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Alþingi Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Sjá meira