Viðskipti innlent

Móður­fé­lag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða

Eiður Þór Árnason skrifar
Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi.
Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi. Vísir/vilhelm

Félagið Festi, sem rekur Krónuna, Elko, Lyfju og N1, hagnaðist um 6,2 milljarða króna árið 2025. Það er rúmlega helmingsaukning frá fyrra ári. Framlegð, sem samsvarar mismuni á tekjum og helstu kostnaðarliðum við sölu vöru og þjónustu, jókst um 19 prósent milli ára og nam 36,7 milljörðum.

Vöru- og þjónustusala jókst um 12,3 prósent milli 2024 og 2025 en hagnaðaraukning nemur 35,3 prósentum milli ára án áhrifa einskiptiskostnaðar. Framlegðarstig var 25,4 prósent þvert á félagið í lok síðasta árs og 23,5 prósent af dagvörusölu. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu félagsins en stjórnendur gera ráð fyrir því að skila enn betri rekstrarniðurstöðu á yfirstandandi ári.

Til stendur að N1 eignist 70 prósenta hlut í veitingakeðjunni Local og þá hefur Lyfja fest kaup á vörumerki Jurtaapóteksins. Á sama tíma hafi síðustu verslun Heilsuhússins verið lokað í janúar í hagræðingarskyni.

„Öll rekstrarfélögin okkar eru að bæta sinn rekstur með aukningu í sölu á vörum og þjónustu ásamt því að ná fram hagræðingu á rekstrarkostnaði á sama tíma,“ er haft eftir Ástu S. Fjeldsted forstjóra í tilkynningu. Ársfjórðungsniðurstöður allra rekstrarfélaga hafi farið fram úr áætlunum. Nam eiginfjárhlutfall félagsins 41,2 prósentum í árslok.

Notfært sér stærð sína í samskiptum við birgja

„Aukin umsvif, bætt stærðarhagkvæmni og aukin samlegð eru lykilþættir í bættri afkomu. Árangur hefur náðst með að halda kostnaði niðri og nota stærð samstæðunnar í samskiptum við birgja og erlenda samstarfsaðila með það að markmiði að bjóða viðskiptavinum sem hagstæðasta verð á hverjum tíma. Sömuleiðis hefur markvert átak í minnkun rýrnunar í verslunum skilað sér í hækkun framlegðarstigs og bættrar rekstrarafkomu þvert á samstæðuna milli ára,“ er haft eftir Ástu.

Fram kemur í tilkynningu að afgreiðslum í Krónunni hafi fjölgað um 7,5 prósent milli ára og velta netverslunar Krónunnar aukist um 50 prósent. Þá hafi aðsókn í vörur hjá Elko aldrei verið meiri.

„Horfur fyrir árið 2026 eru ágætar þrátt fyrir óvissu í þróun efnahagsmála með hækkandi verðbólguspám fyrir fyrri helming ársins. Festi gerir ráð fyrir svipuðum fjölda ferðamanna og á síðasta ári og er búist við því að allir starfsþættir bæti afkomu sína milli ára,“ segir í tilkynningu.

Festi er skráð í Kauphöll Íslands en margir stærstu eigendur félagsins eru íslenskir lífeyrissjóðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×