Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Lovísa Arnardóttir skrifar 5. febrúar 2026 15:30 Líf Magneudóttir er formaður stýrihópsins sem hefur gerði tillögu að Reykjavíkurleiðinni. Hópurinn hefur skoðað umgjörð alls leikskólastarfs í borginni. Vísir/Anton Brink Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir brýningu leikskólastjóra borgarinnar um stöðu leikskólanna, mönnunar og innleiðingu styttingar vinnuvikunnar mikilvæga. Hún áætlar að stýrihópurinn muni skila af sér í febrúar.
Leikskólastjórar á öllum borgarreknu leikskólunum lýstu í vikunni í bréfi til borgarstjóra yfir verulegum áhyggjum af stöðu skólanna og gagnrýndu borgaryfirvöld. Í bréfi sínu krefjast þeir aðgerða og lýsa yfir vonbrigðum með að ákveðið hafi verið að fresta gildistöku svokallaðrar Reykjavíkurleiðar. Í bréfinu kom fram að leikskólastjórar telji sig hafa staðið frammi fyrir óraunhæfum kröfum eftir að stytting vinnuvikunnar var innleidd. Vinnuskylda starfsmanns í fullri vinnu fór þá úr 40 tímum í 36 tíma en stjórnendur máttu ekki ráða inn aukastöðugildi til að mæta styttri vinnutíma. Meðaldvalartími barna er á sama tíma um 40 klukkustundir í leikskólum borgarinnar. Í bréfinu kom jafnframt fram að þolinmæði þeirra væri á þrotum og að skólastjórnendur treystu sér að óbreyttu ekki til að bera ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er innan skólanna. „Við vitum hversu áríðandi þetta er og við finnum fyrir því að fólk er að fara frá okkur, mjög gott starfsfólk, reyndir leikskólastjórar. Þetta er viðfangsefnið og við erum að gera eins vel og við getum,“ segir hún. Leikskólaleiðin, eða Reykjavíkurleiðin, var kynnt fyrir foreldrum í haust og þá var áætlað að hún yrði innleidd um áramótin. Mikill stuðningur er meðal leikskólastjórnenda og starfsfólks leikskóla fyrir innleiðingu breytinganna en í umsögnum í samráðsgátt borgarinnar mátti sjá nokkra mótstöðu og gagnrýni frá ýmsum verkalýðsfélögum, utan Eflingar og Félagi leikskólakennara, og foreldrum, sérstaklega þeim sem einstæðir eru. Samstaða innan stýrihóps Að loknu samráði tók stýrinefndin tillögurnar til endurskoðunar. Líf segir tillögurnar að því loknu hafa farið í jafnréttismat en nefndin áætli að geta skilað af sér í febrúar. „Ég fagna þessari brýningu og tel hana mikilvægt innlegg inn í umræðuna og mikilvægt að það heyrist hátt og greinilega hvert viðfangsefnið á gólfinu er.“ Líf segir almennt hafa verið nokkuð mikla samstöðu innan stýrihópsins um aðgerðirnar en vill þó ekki segja til um það hvort tillögurnar hafi breyst mikið. Í viðtali í janúar sagði hún þær hafa tekið einhverjum breytingum.
Leikskólar Reykjavík Skóla- og menntamál Borgarstjórn Vinnumarkaður Kjaramál Stytting vinnuvikunnar Tengdar fréttir Nýjar tillögur falli á herðar vinnandi foreldra Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega nýjar tillögur um breytta leið Reykjavíkurborgar í leikskólamálum. Hún segir hugmyndirnar falla á herðar vinnandi foreldra. 2. október 2025 20:17 Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Aðstoðarleikskólastjóri í Reykjavík og foreldri barns á leikskóla lýsir mikilli þreytu meðal starfsmanna leikskóla vegna fáliðunar. Stanslaus símtöl til foreldra sem þurfi að sækja börnin sín fyrr og ekkert hafi batnað fyrr en farið var í fasta fáliðun á föstudegi. Þá loks hafi faglega starfið farið að blómstra. 3. október 2025 10:59 Ekki láglaunakvenna að axla ábyrgð á innleiðingu kynjajafnréttis Formaður Eflingar heimsótti í morgun nokkra leikskóla í Reykjavík þar sem hún kynnti könnun félagsins á afstöðu starfsfólks leikskóla til breytinga á gjaldskrá leikskóla. Hún segir breytingar muni henta félagsmönnum Eflingar, ekki bara starfsfólki. Hún segist undrast málflutning annarra verkalýðsfélaga vegna málsins. 15. október 2025 12:00 Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Sjá meira
Nýjar tillögur falli á herðar vinnandi foreldra Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega nýjar tillögur um breytta leið Reykjavíkurborgar í leikskólamálum. Hún segir hugmyndirnar falla á herðar vinnandi foreldra. 2. október 2025 20:17
Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Aðstoðarleikskólastjóri í Reykjavík og foreldri barns á leikskóla lýsir mikilli þreytu meðal starfsmanna leikskóla vegna fáliðunar. Stanslaus símtöl til foreldra sem þurfi að sækja börnin sín fyrr og ekkert hafi batnað fyrr en farið var í fasta fáliðun á föstudegi. Þá loks hafi faglega starfið farið að blómstra. 3. október 2025 10:59
Ekki láglaunakvenna að axla ábyrgð á innleiðingu kynjajafnréttis Formaður Eflingar heimsótti í morgun nokkra leikskóla í Reykjavík þar sem hún kynnti könnun félagsins á afstöðu starfsfólks leikskóla til breytinga á gjaldskrá leikskóla. Hún segir breytingar muni henta félagsmönnum Eflingar, ekki bara starfsfólki. Hún segist undrast málflutning annarra verkalýðsfélaga vegna málsins. 15. október 2025 12:00