Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. febrúar 2026 07:43 Guterres segir um að ræða alvarleg tímamót. Getty/Pacific Press/Lev Radin António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur hvatt Bandaríkjamenn og Rússa til að komast umsvifalaust að nýju samkomulagi um fækkun kjarnorkuvopna. START-samkomulagið frá 2011 rennur út í dag.
Guterres segir um að ræða alvarleg tímamót, þar sem ekkert samkomulag sé í gildi um takmörk á fjölda kjarnorkuvopna sem Bandaríkin og Rússland mega eiga í fyrsta sinn í meira en hálfa öld. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær sagði Guterres að START og aðrir samningar um vopnatakmarkanir hefðu aukið öryggi fólks út um allan heim. Þá sagði hann svokallað New Start-samkomulag ekki hafa getað runnið út á verri tíma, nú þegar hættan á notkun kjarnavopna hefði ekki verið meiri í marga áratugi. Bandaríkin og Rússar eiga samtals um 80 prósent allra kjarnorkuvopna heims. Með samkomulaginu sem var undirritað af þáverandi forsetum, Barack Obama og Dmitry Medvedev, skuldbundu ríkin sig til að takmarka fjölda vopna „í notkun“ við 1.550. If Congress doesn’t act, the last nuclear arms control treaty between the U.S. and Russia will expire. It would pointlessly wipe out decades of diplomacy, and could spark another arms race that makes the world less safe. This piece is worth the read. https://t.co/NPtKyjYRml— Barack Obama (@BarackObama) February 2, 2026 Obama sagði á samfélagsmiðlum að endalok samkomulagsins gætu leitt til nýs vopnakapphlaups og Medvedev sagði stöðuna áhyggjuefni fyrir alla. Biden framlengdi samkomulagið árið 2020 en lítið hefur heyrst af málinu frá ríkisstjórn Donald Trump, sem hefur oftsinnis fordæmt allar takmarkanir á mætti Bandaríkjanna. Sérfræðingar segja það þó ekki endilega hugmyndafræðina sem standi í vegi fyrir nýju samkomulagi, heldur takmarkaða þekkingu og getu innan stjórnarinnar til að ganga frá flóknum samningum.
Sameinuðu þjóðirnar Bandaríkin Rússland Kjarnorkuvopn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira