Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 19:27 Farandsgusur verða sífellt vinsælli hér á landi. Getty Samtök tón- og textahöfunda á Íslandi, STEF, ætla að innheimta gjald fyrir notkun tónlistar í gusum. Gusurnar hafi oft tiltekið þema sem tengist tónlistinni.
Þessu greinir STEF frá í færslu á Facebook. Þar kemur fram að eftir leit forsvarsmanna STEF hafi komið í ljós að rúmlega tuttugu staðir bjóði upp á gusur og í nær öllum tilvikum sé spiluð tónlist. „Er hún í raun í forgrunni fremur en bakgrunni. Þannig að ljóst er að tónlist gegnir verulegu hlutverki við gusustundir. Að mörgu leyti mætti líkja gusum við jógatíma undir leiðsögn kennara. Hver lota er venjulega sett upp með tilteknum lögum og oft hafa gusur tiltekið þema, sem tengist tónlistinni,“ segir í færslunni. Nokkrar tegundir af gusum eru taldar upp, til að mynda djassgusa, dansgusa, sing-along gusa og GusGus-gusa en þar má álykta að tónlist hljómsveitarinnar GusGus sé spiluð. Vegna þessa telur STEF og Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda, SFH, eðlilegt að innheimta fyrir notkun tónlistarinnar. „Innan skamms mun STEF kynna fyrir aðilum sem bjóða slíka þjónustu sérstaka verðskrá fyrir þessa starfsemi. Hún verður alls ekki íþyngjandi, heldur aðeins sanngjarnt endurgjald fyrir notkun á því sem heita má ómissandi lið í upplifun gufusækinna viðskiptavina.“ Gusur eru nýjasta æði þjóðarinnar en þar flykkjast heilu hóparnir í svokallaðar farandsgusur þar sem gusumeistari stýrir hitanum með tilþrifum og grípandi tónlist. Hver lota er um tólf til fimmtán mínútur en þess á milli fer fólk út og jafnvel skellir sér í sjósund.
Tónlist Höfundar- og hugverkaréttur Heilsa Gufuböð Tengdar fréttir Yngsti gusumeistari landsins „Þetta er svo æðislegt og gefur manni svo mikið, svo mikla gleði,“ segir grafíski hönnuðurinn Saga Klose sem er fædd árið 2003 og ber titilinn yngsti gusumeistari landsins. Blaðamaður ræddi við Sögu og fékk að kynnast henni og hinum gríðarlega vinsælu sauna-gusum aðeins betur. 16. júlí 2025 07:03 Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent „Þetta er náttúrlega djöfulsins bruðl“ Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Banksy opinberaður, enn einu sinni Erlent „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglustöðinni verði lokað verði ekki húsnæðið ekki lagað Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más „Þetta er náttúrlega djöfulsins bruðl“ Vonskuveður víðast hvar og Eyjólfur varði Fljótagöng Eldur kviknaði í bíl Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun „Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum“ Flugið er líflína milli byggða Grænlands Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Kreppuverðbólga og kjaraviðræður í aðsigi Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum Faðir um brunann á Stuðlum, uppgjör í undirheimum og forsendubrestur Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Segir meinta vegtolla ekki á dagskrá Sjá meira
Yngsti gusumeistari landsins „Þetta er svo æðislegt og gefur manni svo mikið, svo mikla gleði,“ segir grafíski hönnuðurinn Saga Klose sem er fædd árið 2003 og ber titilinn yngsti gusumeistari landsins. Blaðamaður ræddi við Sögu og fékk að kynnast henni og hinum gríðarlega vinsælu sauna-gusum aðeins betur. 16. júlí 2025 07:03