Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Samúel Karl Ólason og Kjartan Kjartansson skrifa 4. febrúar 2026 07:02 Hér má sjá tölvupóst frá október 2020 þar sem lögmaður segir meint fórnarlamb Epsteins búa í Reykjavík. Myndinni af Epstein hefur verið bætt við, og sömuleiðis gula litnum. Kona sem sakaði Jeffrey Epstein um að brjóta kynferðislega á sér var búsett á Íslandi samkvæmt töluvpósti sem lögmenn hóps fórnarlamba hans sendu fyrir sex árum. Tölvupósturinn er á meðal milljóna skjala sem bandarísk yfirvöld hafa birt úr rannsókn á Epstein.
Í nýjasta skammti Epstein-skjalanna svokölluðu sem birt voru í síðustu viku má finna tölvupóstsamskipti frá 2020. Þau virðast vera milli lögmanna hóps fórnarlamba Epsteins og starfsmanna dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna þar þeir skipulögðu viðtöl starfsmanna alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) við fórnarlömbin. Þetta var í lok október 2020 en Epstein hafði tæpu ári áður svipt sig lífi í fangelsi. Hann var þá 66 ára gamall og hafði verið ákærður fyrir umfangsmikið mansal og kynferðisbrot gegn fjölda kvenna og stúlkna í gegnum árin. Sjá einnig: Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Meðal annars hefur hann verið sakaður um að brjóta á konum og stúlkum á heimilum sínum í New York, Flórída og á einkaeyju sinni í Karíbahafinu. Þessar konur munu flestar hafa komið frá Bandaríkjunum en einnig frá öðrum ríkjum. Moskva, Ósló, Lundúnir og Reykjavík Gloria Allred, einn lögmanna fórnarlambanna, svaraði póstinum (finna má skjalið hér) og spurði hvort ekki væri hægt að ræða við fórnarlömb sem óskuðu þess gegnum fjarfundarbúnað eða síma. Margir vildu ekki ferðast til Miami og ræða við embættismenn þar og aðrir hefðu ekki tök á því. Faraldur Covid-19 hjálpaði einnig ekki til. Allred er þekktur lögmaður ytra sem hefur lengi starfað fyrir fórnarlömb Epsteins. Í síðasta mánuði sagði hún 27 fórnarlömb Epsteins vera skjólstæðinga sína. Í öðru svari sagði Allred að skjólstæðingar hennar væru ekki allir frá Bandaríkjunum. Einhverjir byggju í öðrum löndum. Að endingu sendi annar lögmaður fórnarlambanna lista yfir fimmtán staði í heiminum, þar sem umræddir skjólstæðingar voru sagðir búa. Á þeim lista voru flestir staðirnir í Bandaríkjunum en þar voru einnig nefnd Moskva í Rússlandi, Ósló í Noregi, Lundúnir á Englandi og Reykjavík. Fréttastofa sendi fyrirspurnir á lögmennina tvo sem svara umræddum póstum í Epstein-skjölunum. Hvorugur vildi tjá sig um málið. Svör hafa ekki borist við fyrirspurnum um það hvort málið hafi ratað á borð yfirvalda hér á landi. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna.
Mál Jeffrey Epstein Kynferðisofbeldi Erlend sakamál Bandaríkin Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira