Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 13:23 Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir nauðsynlegt að sporna við þróuninni. Vísir/Lýður Valberg Afbrotafræðingur segir þörf á að herða eftirlit með unglingahópum sem komi saman við verslanir á kvöldin og um helgar. Nýjasta skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra sýnir að eftir margra ára fækkun ofbeldismála ungs fólks hafi málunum fjölgað á allra síðustu árum.
Þolandi líkamsárásar steig fram í kvöldfréttum Sýnar og opnaði sig um árás sem hann varð fyrir af hálfu ungmenna á föstudagskvöld í strætóskýli. Hann sagði árásina hafa verið tilefnislausa, hann hafi einvörðungu ætlað að sýna unglingahópi spilagaldur. Hann kvaðst þakklátur fyrir að vera á lífi og að hann hafi haldið, þegar ofbeldið stóð sem hæst, að þetta væri hans síðasta. Þetta er langt því frá eina tilfellið á síðustu árum sem ungmenni í hópum ráðast að einum. Margrét Valdimarsdóttir er afbrotafræðingur. Hvað segja fræðin? Hvað er í gangi með unglingana okkar? „Síðasta skýrsla sem kom frá greiningadeild lögreglunnar um ungt fólk sýndi að eftir margra ára fækkun á ofbeldi hefur þeim farið fjölgandi á allra síðustu árum. Almennt þá er sú skýrsla, ég held hún rými við tilfinningar margra og fréttir sem hafa verið að birtast af þessum alvarlegu ofbeldisbrotum þar sem ungt fólk á í hlut.“ Hún segir alveg ljóst að meira sé orðið um hópamyndanir eftirlitslausra unglinga á kvöldin og um helgar. Það sé ekki hægt að líta svo á að slík þróun sé eðlileg. Auka þurfi eftirlit með unglingahópum því það sé líklegra að óæskileg hegðun magnist upp í hópum. Lítill ágreiningur sé líklegri til að þróast í alvarlegar árásir. „Þau átti sig ekki á alvarleika málsins. Fá ungmenni eru illmenni og við vitum það af rannsóknum að þau vita að ofbeldi er rangt og þeim finnst ekki réttlætanlegt að beita ofbeldi. Það er almenna viðhorfið hjá ungu fólki en svo verður einhver ágreiningur og þau taka einhverjar ákvarðanir sem þau myndu ekki undir öðrum kringumstæðum gera og átta sig ekki á því hvað það þarf stundum lítið til, hvernig slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi,“ sagði Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur.
Ofbeldi barna Börn og uppeldi Lögreglumál Tengdar fréttir Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Lögreglan segir að líkamsárás sem átti sér stað í Garðabæ á föstudagskvöldið hafi verið mjög fólskuleg og telur sig vera komna með ágæta mynd af atburðarásinni. Þrír eru grunaðir í málinu en árásarmennirnir eru 16 og 17 ára. 2. febrúar 2026 12:00 „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Tvenn ungmenni réðust á karlmann á fimmtugsaldri við strætóbiðstöð við Hafnarfjarðarveg til móts við Aktu taktu skömmu fyrir miðnætti í gær. Málið er rannsakað sem stórfelld líkamsárás. Brotaþoli var fluttur á slysadeild en lítið er vitað um líðan mannsins. 31. janúar 2026 11:42 Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Fleiri fréttir Braut reglur þegar hann minntist Steins Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Sjá meira
Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Lögreglan segir að líkamsárás sem átti sér stað í Garðabæ á föstudagskvöldið hafi verið mjög fólskuleg og telur sig vera komna með ágæta mynd af atburðarásinni. Þrír eru grunaðir í málinu en árásarmennirnir eru 16 og 17 ára. 2. febrúar 2026 12:00
„Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Tvenn ungmenni réðust á karlmann á fimmtugsaldri við strætóbiðstöð við Hafnarfjarðarveg til móts við Aktu taktu skömmu fyrir miðnætti í gær. Málið er rannsakað sem stórfelld líkamsárás. Brotaþoli var fluttur á slysadeild en lítið er vitað um líðan mannsins. 31. janúar 2026 11:42