Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 1. febrúar 2026 12:52 Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Vilhelm Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki ætla að spá fyrir um ákvörðun peningastefnunefndar um stýrivexti en nefndin kynnir ákvörðun sína á miðvikudag. „
Ég ætla ekki að fara að giska á hvað stefnunefnd mun gera, en ég get tekið undir það sjónarmið að líkurnar á lækkun núna á næsta fundi eru mjög litlar,“ sagði Daði Már á Sprengisandi í dag. Hann áréttir þó að Seðlabankinn horfi á heildarhagkerfið og þó það hljómi eins og þversögn þýði stýrivextir að hægt sé að gera mjög mikið til að örva hagkerfið. Í vikunni var greint frá því að verðbólga mælist nú 5,2 prósent, umfram svörtustu spár. Daði Már hefur sætt gagnrýni vegna ýmissa hækkana sem gerðar voru á opinberum gjöldum um áramótin. Margar þeirra tengjast ökutækjum. Þá hefur hann sætt gagnrýni fyrir að kenna olíufélögunum um aukna verðbólgu. Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir ákvörðun sína næsta miðvikudag. Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbanka eru ósammála í spám sínum um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans. Íslandsbanki spáir óbreyttum stýrivöxtum en Landsbankinn spáir 0,25 prósentustiga hækkun. Á Sprengisandi ítrekaði Daði Már að hann harmi að ekki hafi gengið betur að ná niður vöxtum en raun ber vitni. „Ég er ekki ánægður. Og það er alls ekki að ég sé að standa mig nógu vel í vinnunni,“ segir Daði. Hann viðurkennir sem fyrr að hafa gagnrýnt hagræðingaraðgerðir fyrri ríkisstjórna, en í þeim fólust meðal annars óútfærðar afkomubætandi aðgerðir. „Við nálguðumst þetta allt öðruvísi, með því að leita til almennings og setja síðan saman svona möppu af aðgerðum sem á tímabili fjármálaáætlunar eiga að skila tæplega 110 milljörðum,“ segir Daði. Hann segir vel hafa gengið að skera niður enn sem komið er og bendir á að í fyrra hafi tekist að draga saman kostnað ríkisins um fimmtán prósent. „Það sem er auðvitað líka ljóst er á sama tíma, tekur þessi ríkisstjórn við raunverulega með það verkefni og umboð að hreyfa við ákveðinni kyrrstöðu sem hafði ríkt, koma orkuöflun aftur af stað, vinna úr innviðaskuldinni.“
Efnahagsmál Verðlag Neytendur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, segir að sér þyki leiðinlegt að ekki gangi betur að ná niður verðbólgu og vöxtum. Hann muni leggja sig allan fram og ekki hvílast fyrr en árangri hafi verið náð. 29. janúar 2026 20:46 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Sjá meira
„Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, segir að sér þyki leiðinlegt að ekki gangi betur að ná niður verðbólgu og vöxtum. Hann muni leggja sig allan fram og ekki hvílast fyrr en árangri hafi verið náð. 29. janúar 2026 20:46