Segir sig frá hlutverkinu vegna óánægju með upprunann Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. janúar 2026 13:17 Odessa A'zion er rísandi stjarna í Hollywood og lék nýverið í stórmyndinni Marty Supreme og sjónvarpsþáttunum I Love LA. Getty Leikkonan Odessa A’zion hefur hætt við að leika í kvikmyndinni Deep Cuts, sem byggir á samnefndri metsölubók, í kjölfar harkalegra viðbragða netverja. Óánægjan byggðist á því að persónan sem Odessa átti að leika var af mexíkóskum og gyðingaættum meðan leikkonan er af þýskum og gyðingaættum.
Hin 25 ára A'zion tilkynnti ákvörðunina með myndaröð á Instagram-hringrás sinni á miðvikudaginn. „Gaurar!! Ég er sammála ykkur ÖLLUM og ætla EKKI að vera með í myndinni,“ skrifaði leikkonan um kvikmyndaaðlögun leikstjórans Seans Durkin á metsölubókinni Deep Cuts eftir Holly Brickley. A'Zion tilkynnti ákvörðunina aðeins nokkrum vikum áður en tökur áttu að hefjast. Skáldsagan Deep Cuts kom út í fyrra og fjallar um ástarsamband tónlistargagnrýnandans Percy (Cailee Spaeny) og söngvaskáldsins Joe (Drew Starkey). Odessa átti að leika persónuna Zoe Gutierrez, vinkonu Percy, sem er af mexíkóskum og gyðingaættum. Odessa er vissulega af gyðingaættum en hefur enga rómanska tengingu sem fór fyrir brjóstið á netverjum. Odessa leikur stórt hlutverk í Marty Supreme sem er í bíó um þessar mundir. „Takk fyrir að vekja athygli mína á þessu. Mér þykir svo leitt að þetta skyldi gerast. Ég fór í prufu fyrir Percy en bauðst að leika Zoe og sagði samatundis já! Ég er svo pirruð, ég hafði ekki lesið bókina og hefði átt að kynna mér alla eiginleika Zoe áður en ég tók hlutverkinu... og nú þegar ég veit það?“ skrifaði hún og sagðist hætt. „Ég myndi aldrei taka hlutverk frá einhverjum sem var ætlað að fá það,“ skrifaði hún og sagði fullt af öðru fólki sem var hæfara en hún í að leika hlutverkið. Hún hefði verið svo upptekin við vinnu að hún hefði ekki haft tíma til að lesa bókina. Upphaflega áttu Austin Butler og Saoirse Ronan að fara með aðalhlutverkin í myndinni en hættu við vegna áreksturs í dagskrá. Leikstjóri myndarinnar er Sean Durkin sem leikstýrði síðast The Iron Claw (2023). Durkin er einnig framleiðandi myndarinnar ásamt Eli Bush, Ronald Bronstein og Josh Safdie.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Hollywood Tengdar fréttir Óbilandi trú á eigin ágæti Bólugrafinn og renglulegur með samvaxnar augabrúnir og hormottu, hrokafullur, hraðlyginn og hvatvís, kjaftfor, sjálfumglaður og ódrepandi við að ná markmiði sínu: að verða sá besti í heimi, sama hvað það kostar. 30. janúar 2026 07:02 Svarar fyrir leikaraval í eitt leyndardómsfyllsta hlutverk galdraheimsins Netverjar hafa gagnrýnt leikaravalið á grundvelli þjóðernis leikkonunnar. 28. september 2018 08:39 Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Fleiri fréttir „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira
Óbilandi trú á eigin ágæti Bólugrafinn og renglulegur með samvaxnar augabrúnir og hormottu, hrokafullur, hraðlyginn og hvatvís, kjaftfor, sjálfumglaður og ódrepandi við að ná markmiði sínu: að verða sá besti í heimi, sama hvað það kostar. 30. janúar 2026 07:02
Svarar fyrir leikaraval í eitt leyndardómsfyllsta hlutverk galdraheimsins Netverjar hafa gagnrýnt leikaravalið á grundvelli þjóðernis leikkonunnar. 28. september 2018 08:39