Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. janúar 2026 12:34 Héraðsdómur Norðurlands vestra er á Sauðárkróki. Vísir/Egill Maður sem ákærður var fyrir meint ofbeldi gagnvart barnabarni sínu með því að rasskella strákinn var sýknaður í héraðsdómi. Maðurinn var talinn hafa sýnt af sér varnarviðbragð vegna hegðunar drengsins.
Í dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra kemur fram að málið hafi verið höfðað af móður barnsins gegn manninum fyrir að hafa 1. ágúst 2024 beitt barnabarn sitt ofbeldi og líkamlegum refsingum, sýnt honum yfirgang og ruddalegt athæfi en ákærði rasskellti barnabarn sitt. Maðurinn neitaði sök. Málið er rakið í dóminum. Þar segir að drengurinn hafi greint frá hinu meinta broti í viðtali við barnavernd 13. ágúst 2024. Drengurinn hafi haldið upp á afmælið sitt og orðið „eitthvað pirraður“ í afmælinu og farið inn í herbergi. Sagði hann að afi hans hafi í framhaldinu farið inn í herbergi til hans, barið hann í bringuna, rasskellt hann, kyrkt hann og ýtt honum utan í vegg. Sagðist hafa varið sig Maðurinn gaf skýrslu fyrir dómi og sagðist hafa verið staddur hjá syni sínum og tengdadóttur þennan dag. Þar hafi drengurinn verið og sonur tengdadóttur mannsins. Strákarnir hafi farið að rífast og drengurinn lamið hinn í andlitið. Lýsti maðurinn því að drengurinn hafi verið „trylltur.“ Hann hafi sest á rúmið og haldið utan um drenginn sem hafi orðið „alveg vitlaus,“ hent síma sínum í gólfið og hótað að brjóta rúðu. Hann hafi reynt að halda stráknum sem hann hafi vitað að væri „alveg ógnarsterkur“ og drengurinn verið kominn ofan á hausinn á honum og hann varla ráðið nokkuð við hann. Hann hafi þá slegið á lærið á honum og sagðist með þessu hafa verið að verja sig með þessu því drengurinn væri hættulegur, tilgangurinn hafi einungis verið að losna frá honum. Hafi átt það til að beita ofbeldi Þá sagði hann aðspurður einungis hafa slegið drenginn í lærið en ekki rasskellt hann. Sagði hann drenginn einhverfan og búa til sögur. Ennfremur kemur fram í dómi að drengurinn hafi átt það til að beita ofbeldi, verið mjög erfiður viðfangs þegar hann reiddist og meðal annars þurft að kalla til lögreglu á heimili hans vegna hegðunar hans. Segir í dómi að þegar gögn málsins séu metin í heild standi líkur til þess að höggið sem maðurinn hafi veitt drengnum hafi verið einhverskonar varnarviðbragð ákærða við yfirstandandi árás drengsins en að það hafi ekki haft þann tilgang að meiða drenginn eða refsa honum. Maðurinn því sýknaður.
Dómsmál Barnavernd Börn og uppeldi Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira