Ekki urða yfir okkur Brynja Hlíf Hjaltadóttir skrifar 28. janúar 2026 12:00 Í 30 ár hefur úrgangur frá höfuðborgarsvæðinu og víðar að verið urðaður á Álfsnesi á Kjalarnesi. Landið er í eigu Reykjavíkurborgar og blasir við Mosfellingum og stórum hluta Reykjavíkur. Urðunarstaðurinn hefur verið Mosfellingum til mikilla ama og löngu orðið tímabært að loka urðunarstaðnum á Álfsnesi. Eigendasamkomulag um lokun Urðunarstaðurinn á Álfsnesi er rekinn af Sorpu byggðasamlagi en Sorpa er eigu sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu þ.e. Reykjavíkur sem er um 60% eigandi, Kópavogs 14%, Hafnarfjarðar 12%, Garðabæjar 6,7%, Mosfellsbæjar sem á 4,4% hlut og Seltjarnarness 1,9%. Árið 2013 skrifuðu allir þáverandi bæjarstjórar og fulltrúi Reykjavíkur undir eigendasamkomulag þess efnis að hætt yrði að urða á Álfsnesi og gas – og jarðgerðarstöð yrði byggð til að meðhöndla lífrænan úrgang samkvæmt lögum. Þetta samkomulag var gert að frumkvæði Mosfellsbæjar. Erfiðlega gekk að finna nýjan urðunarstað og frá árinu 2022 hefur ekkert gerst í þeim málum. Því miður hefur núverandi meirihluti í bæjarstjórn Mosfellsbæjar lítið hafti sig frammi við að sporna við áframhaldandi urðun á Álfsnesi. Á meðan Mosfellsbær þegir verður urðað áfram þegjandi og hljóðlaust. Áfram urðað í 10 ár og enn á að bæta í Barátta okkar Mosfellinga fram til ársins 2022 snérist um úrbætur á Álfsnesi og síðast en ekki síst að loka á urðun á þessu svæði. Þessar raddir þögnuðu undir stjórn núverandi meirihluta í Mosfellsbæ. Nú hefur verið skrifað undir áframhaldandi urðun í 10 ár í viðbót og berast fréttir um að auka eigi enn frekar það magn sem má urða. Þetta verður að stöðva en til þess þarf kjark og áræðni. Ekki sofna á verðinum Áratuga barátta Mosfellinga lengst framan af skilaði þó einhverjum árangri t.d. um að minnka magnið sem má urða og fá önnur sveitarfélög til að taka þátt í frekar aðgerðum á svæðinu. Ef við Mosfellingar berjumst ekki áfram verður urðað yfir okkur. Sem íbúi í Leirvogstungunni með“ ilminn“ frá Álfsnesi á fallegum sumarkvöldum og tilheyrandi óþægindum frá urðunarstaðnum segi ég stopp. Urðunarstaðnum á Álfsnesi verður að loka. Æ oftar heyrast kunnuglegar raddir um að urða meira og að ódýrast sé að moka úrgangi í holu á Álfsnesi. Við Mosfellingar verðum að berjast fyrir lokun urðunarstaðarins því það mun enginn gera það fyrir okkur. Það er ekki í boði lengur að sofa á verðinum líkt og núverandi meirihluti hefur gert sl. fjögur ár með tilheyrandi þakklæti hinna sveitarfélaganna yfir því að ekkert heyrist frá Mosfellsbæ. Við það verður ekki unað mikið lengur. Höfundur er frambjóðandi í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mosfellsbær Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar