Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Atli Ísleifsson skrifar 27. janúar 2026 12:14 Sævar Sigurðsson, Hallur Geir Heiðarsson og Sunna Rúnarsdóttir. Coca-Cola á Íslandi hefur ráðið þrjá nýja forstöðumenn í stjórnendateymi fyrirtækisins. Þannig hefur Sunna Rúnarsdóttir verið ráðin forstöðumaður þjónustu, Sævar Sigurðsson forstöðumaður vöruhúss og dreifingar og Hallur Geir Heiðarsson forstöðumaður sölu á matvörumarkaði.
Í tilkynningu segir að um sé að ræða ráðningar í lykilhlutverk sem styðji við áframhaldandi vöxt, þróun og þjónustu við viðskiptavini og neytendur. „Sunna Rúnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustu hjá Coca-Cola á Íslandi. Sunna þekkir fyrirtækið vel eftir að hafa starfað á sölusviði þess undanfarin ár, fyrst í viðskiptaþjónustu og síðar í sölustýringu. Í nýju hlutverki mun Sunna leiða þjónustu þvert á svið fyrirtækisins, með áherslu á áframhaldandi þróun og eflingu þjónustuupplifunar viðskiptavina. Sunna er með meistaragráðu í viðskiptahagfræði með áherslu á stefnumótun og forystu. Sævar Sigurðsson forstöðumaður vöruhúss og dreifingar Sævar Sigurðsson hefur tekið við starfi forstöðumanns vöruhúss og dreifingar hjá Coca-Cola á Íslandi. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2014 og sinnt fjölbreyttum verkefnum, nú síðast gegndi hann starfi forstöðumanns sölu á matvörumarkaði. Sævar lauk námi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2018. Hann býr yfir djúpstæðri þekkingu á rekstri fyrirtækisins og viðtækri reynslu af þjónustu við viðskiptavini, sem nýtist vel í nýju hlutverki hans við stjórn vöruhúss og dreifingar. Hallur Geir Heiðarsson ráðinn forstöðumaður sölu á matvörumarkaði Hallur Geir Heiðarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður sölu á matvörumarkaði hjá Coca-Cola á Íslandi. Hallur hefur yfirgripsmikla stjórnunarreynslu úr smásölu, rekstri og aðfangakeðju, allt frá innkaupum og vörustýringu til dreifingar og þjónustu við viðskiptavini. Hallur starfaði hjá Samkaupum frá árinu 2004, síðustu þrjú ár sem framkvæmdastjóri innkaupa- og vörustýringarsviðs. Þar á undan var hann rekstrarstjóri Nettó-Samkaupa í 11 ár, með ábyrgð á rekstri og þróun allra Nettó-verslana,“ segir í tilkynningunni. Hjá Coca-Cola á Íslandi starfa um 170 manns á tveimur starfsstöðvum, í Reykjavík og á Akureyri.
Vistaskipti Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira