Samfylking til framtíðar Bjarnveig Birta Bjarnadóttir og Stein Olav Romslo skrifa 24. janúar 2026 10:32 Í dag er sögulegt tækifæri til að koma ungu fólki í borgarstjórnarflokk Samfylkingarinnar í vor. Samfylkingin hefur aðeins einu sinni kosið sér nýjan borgarfulltrúa undir 35 ára. Ungt fólk hefur samt verið duglegt að bjóða sig fram í prófkjörum en ekki hlotið framgang. Af því tilefni hélt Ungt jafnaðarfólk, ungliðahreyfing flokksins, forprófkjör í desember. Tilgangurinn var að velja tvo fulltrúa ungs fólks sem flokksfólk gæti flykkt sér saman um. Í forprófkjörinu voru 6 frambjóðendur og mörg hundruð ungmenni í Samfylkingunni greiddu atkvæði. Við undirrituð, Bjarnveig Birta og Stein Olav, vorum kjörin fulltrúar ungs fólks í prófkjöri Samfylkingarinnar. Forprófkjör Ungs jafnaðarfólks var tilraun til að veita ungu fólki þann framgang í flokknum sem það á skilið og efla rödd ungs fólks innan borgarstjórnar. En ekkert er í hendi. Nú þarf Samfylkingin að sýna að ungt fólk fái tækifæri innan flokksins. Við ekki bara ung, við erum líka hæf. Bjarnveig Birta, er 33 ára rekstrarstjóri og þriggja barna móðir úr Grafarvogi, alin upp í Breiðholti. Hún ætlar að berjast fyrir barnafjölskyldur, vera öflugur fulltrúi úthverfanna í borgarstjórn og passa upp á reksturinn. Birta ætlar að taka til í rekstrinum og forgangsraða verkefnum sem hafa bein áhrif á líf fólks. Hún þekkir vandamálin af eigin raun og kann á rekstur. Stein Olav er 32 ára stærðfræðikennari í Hagaskóla – eini kennarinn í framboði. Hann vill að betur sé brugðist við vanlíðan ungmenna og stórum áskorunum sem við blasa í skólunum. Hann ætlar að fjölga fagfólki í skólum og gera stuðning við börn og ungmenni markvissari. Með jafnaðarstefnuna að leiðarljósi vill hann tryggja öllum börnum sömu tækifæri. Það hefur borgað sig að gefa ungu fólki tækifæri í stjórnmálum á Íslandi, ekki síst í Samfylkingunni. Kristrúnu Frostadóttir var 33 ára þegar hún var kjörin til Alþingis og 34 ára þegar hún var kjörin formaður Samfylkingarinnar. Síðan þá hefur Kristrún breytt stjórnmálum á Íslandi, fært þau nær hinum almenna manni og knúið fram raunverulegar breytingar fyrir fólkið í landinu sem forsætisráðherra. Jóhann Páll var kjörinn ásamt Kristrúnu árið 2021, þá 29 ára, og er í dag loftlags-, orku- og umhverfisráðherra þar sem hann hristir upp í hlutunum. Þau eiga framgang sinn í stjórnmálum að miklu leyti samstöðu ungs fólks að þakka. Dagur B. Eggertsson var fenginn í öruggt sæti hjá R-listanum á sínum tíma því Ingibjörg Sólrún sá í honum framtíðarleiðtoga. Hún gerði sér grein fyrir mikilvægi þess að gefa ungum og upprennandi stjórnmálamanni tækifæri og tryggja framtíð jafnaðarstefnunnar sem stjórnmálaafls. Það tókst vel og Samfylkingin stýrði borginni um árabil undir forystu Dags sem breytti Reykjavík til hins betra. Framgangur ungs fólks innan Samfylkingarinnar er nauðsynlegur til að flokkurinn verði áfram ráðandi afl á Íslandi, bæði í landsmálunum og á sveitarstjórnarstiginu. Til að við byggjum Samfylkingu til framtíðar. Við hvetjum allt Samfylkingarfólk til að kjósa unga fólkið, okkur Bjarnveigu Birtu og Stein Olav, í 3. og 4. sæti. Við erum ung, hæf og klár til verka flokki og borg til sóma. Höfundar eru frambjóðendur í 3.- og 4. sæti á lista Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Samfylkingin Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar