„Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. janúar 2026 12:01 Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf. Vísir/Vilhelm Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir rök sín fyrir að kæra tvo aðgerðarsinna fyrir húsbrot í kjölfar mótmæla þeirra á hvalveiðibátum vera til að fæla aðra frá því að gera slíkt.
Aðalmeðferð fer fram í dag í máli Anahitu Sahara og Elissu Philps sem dvöldu í hvalveiðibátunum Hval 8 og Hval 9 í 33 klukkustundir í byrjun september árið 2023. Kristján bar vitni fyrir dómi og sagðist hafa kært konurnar tvær til lögreglu daginn eftir mótmælin. Aðgerðirnar, þegar konurnar voru handteknar, voru hins vegar alfarið í höndum lögreglu á vettvangi. „Þetta var um morgun og löggan er komin á staðinn og við létum hana um þetta,“ sagði Kristján. Fælingarmátturinn Ekkert tjón varð af mótmælunum Kristján ákvað að kæra til að búa til ákveðinn fælingarmátt. „Fælingarmáttur að vera ekki að þvælast um borð. Þetta er stórhættulegt að fara þarna upp ef þú kannt það ekki. Ef þér skrikar fótur ertu dauð eða lömuð fyrir lífstíð, þetta er ekkert grín.“ Hann staðfesti einnig að engar skemmdir voru á skipinu eftir mótmælin og þá stóð ekki til að hefja veiðar umrædda daga vegna veðurs. „Ég veit ekki hvort þú býrð á Íslandi en það er mjög áhrifaríkt veðrið,“ sagði Kristján. „Veðurspáin var þannig að það hafði engan tilgang, hvorugan daginn.“ Skýrt merki á tveimur tungumálum Kristján sagði að á þessum tímapunkti hafi verið auðvelt fyrir konurnar að komast um borð í skipið án þess að nota landganginn. Á landganginum hafi verið skilti þar sem stóð að óviðkomandi væri bannaður aðgangur, bæði á íslensku og ensku. Hann gaf lítið fyrir spurningar Katrínar Oddsdóttur, verjanda kvennanna. Þegar hún spurði hvort hann myndi hvað kom fram í kærunni benti hann Katrínu á að hún væri sjálf með skjalið og gæti lesið það sjálf. „Það eru tvö og hálft ár síðan, það er ekki hægt að muna allan þennan djöful,“ sagði Kristján.
Mótmæli í tunnum Hvals 8 og 9 Hvalveiðar Dómsmál Hafnarmál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira