„Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 21. janúar 2026 19:47 Þessi kúvending er brött. Trump myndaður þegar hann kemur af fundi varðandi mál Grænlands á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos. AP/Markus Schreiber Donald Trump Bandaríkjaforseti er hættur við að leggja refsitolla á Evrópu vegna Grænlands. Hann segist hafa átt góðan fund með Mark Rutte framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins og þar hafi þeir náð saman um „ramma framtíðarsamkomulags varðandi Grænland og raunar alls heimsskautsins.“ Hann tilkynnir um þetta í færslu á samfélagsmiðlum. Hann hafði áður tilkynnt um að Bandaríkin myndu leggja tíu prósent aukalegan toll á allan innflutning frá átta Evrópuríkjum. Það hefði svo hækkað um fimmtán prósentustig til viðbótar hefðu Bandaríkin ekki innlimað Grænland fyrir 1. júní. Færslan kom eins og þruma úr heiðskíru lofti.Skjáskot „Á grundvelli þessa samkomulags, mun ég ekki leggja á tollana sem til stóð að tækju gildi 1. febrúar. Frekari viðræður varðandi Gullhvelfinguna hvað Grænland snertir standa yfir. Frekari upplýsingar verða opinberaðar eftir því sem viðræðum vindur fram.“ Athygli vekur að talað sé um framtíðarsamkomulag um allt heimsskautið, sérstaklega í ljósi þess að hann ruglaðist ítrekað á Íslandi og Grænlandi í ræðu sinni á Alþjóðaefnahagsráðstefnunni fyrr í dag. Vísir hefur fylgst vel með og haldið úti vakt í allan dag. Hana má sjá hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhala síðunni.
Hann tilkynnir um þetta í færslu á samfélagsmiðlum. Hann hafði áður tilkynnt um að Bandaríkin myndu leggja tíu prósent aukalegan toll á allan innflutning frá átta Evrópuríkjum. Það hefði svo hækkað um fimmtán prósentustig til viðbótar hefðu Bandaríkin ekki innlimað Grænland fyrir 1. júní. Færslan kom eins og þruma úr heiðskíru lofti.Skjáskot „Á grundvelli þessa samkomulags, mun ég ekki leggja á tollana sem til stóð að tækju gildi 1. febrúar. Frekari viðræður varðandi Gullhvelfinguna hvað Grænland snertir standa yfir. Frekari upplýsingar verða opinberaðar eftir því sem viðræðum vindur fram.“ Athygli vekur að talað sé um framtíðarsamkomulag um allt heimsskautið, sérstaklega í ljósi þess að hann ruglaðist ítrekað á Íslandi og Grænlandi í ræðu sinni á Alþjóðaefnahagsráðstefnunni fyrr í dag. Vísir hefur fylgst vel með og haldið úti vakt í allan dag. Hana má sjá hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhala síðunni.
Grænland Bandaríkin Donald Trump Evrópusambandið Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira