Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. janúar 2026 00:59 Daði var orðinn langþreyttur á gangstéttum í Seljahverfi og ákvað að grípa til eigin ráða. Vísir/Bjarni Íbúi í Seljahverfi í Reykjavík hefur sett í loftið nýja vefsíðu þar sem sjá má kort yfir það sem hann kallar raunverulegt ástand borgarinnar. Hann segir um að ræða borgaralegt tilkynningakerfi og vonar að borgin bregðist við skemmdum.
Um er að ræða kortasjá á vefsíðunni Walkout.is en henni er ætlað að gera íbúum kleift að skrá ábendingar um ástand gangstétta, ljósastaura, um umferðaröryggi eða ástand húsnæða í eigu borgarinnar svo fátt eitt sé nefnt. Vefurinn er ekki á vegum borgarinnar heldur Daða Freys Ólafssonar íbúa í Seljahverfi sem segir vefinn þó ekki snúast um kvartanir. „Þetta snýst um ábyrgð og eftirfylgni. Við viljum fá raunveruleg svör og við viljum að fólk fari að framkvæma og laga gangstéttirnar í hverfinu.“ Upplýsi um raunverulega stöðu í borginni Þannig nefnir Daði að gangstéttir í Seljahverfi og víðar hafi lengi verið ónýtar, borginni hafi ítrekað verið bent á málið án þess að hafa brugðist við. „Þau eru með ábendingagátt en það er enginn sýnileiki. Mér finnst alvarlegt að það sé ekki búið að upplýsa íbúa um raunverulega stöðu í borginni og þannig hófst þetta verkefni.“ Hann vonist með þessu til þess að borgaryfirvöld bregðist við og að síðan nýtist bæði íbúum og yfirvöldum. Þetta er eitthvað sem engum hefur dottið í hug að gera áður og borgin ekki skaffað? „Ég bara get ekkert sagt til um það hvort þetta sé til inni á skrifstofum borgarstarfsmanna sem ég held að séu mjög góðir og faglegir í sínum störfum, en þetta hefur allavega ekki verið sýnilegt íbúum.“ Þú vonast til þess að þetta verði til þess að, til dæmis gangstéttir, verði lagaðar? „Já bara sem fyrst. Mér skilst það þurfi ekki mjög mikinn pening á hverju ári til þess að ganga í þessi verk.“
Reykjavík Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Sjá meira