Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Agnar Már Másson skrifar 17. janúar 2026 19:09 Emmanuel Macron og Donald Trump, forsetar Frakklands og Bandaríkjanna í Hvíta húsinu. AP/Ludovic Marin Frakklandsforseti segir að Evrópulönd muni svara fyrirhuguðum Grænlandstollum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, taki þeir gildi. Hótanir Bandaríkjamannsins séu óásættanlegar og dragi ekki úr stuðningi Frakklands við Danmörku.
Í færslu á X gefur Macron lítið fyrir hótanir Trump, sem tilkynnti í dag að hann hygðist leggja tíu prósenta toll á allar vörur frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Bretlandi, Hollandi og Finnlandi frá og með 1. febrúar vegna þess að fyrrnefnd lönd styðja ekki innlimun Bandaríkjanna á Grænlandi, sem heyrir undir dönsku krúnuna. „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur, hvorki í Úkraínu, né á Grænlandi, né heldur annars staðar í heiminum þegar við stöndum frammi fyrir slíkum aðstæðum. Einnig vegna þess að það varðar öryggi á norðurslóðum og á ystu mörkum Evrópu okkar,“ skrifar hann. „Tollahótanir eru óásættanlegar og eiga ekki heima í þessu samhengi. Evrópubúar munu bregðast við með sameinuðum og samræmdum hætti ef þær verða staðfestar,“ skrifar hann. „Við munum tryggja að fullveldi Evrópu sé virt.“ Að lokum segist hann munu ræða við evrópsk starfssystkini sín um málið. Í færslu sem Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðli sínum í dag segir hann sömuleiðis að tollurinn muni hækka um 15 prósentustig og nema 25 prósentum 1. júní hafi Bandaríkjamenn ekki fengið yfirráð yfir Grænlandi. Ekkert bendir til þess í færslu Trump að Ísland verði fyrir barðinu á þessum tollum þrátt fyrir að tveir fulltrúar Landhelgisgæslunnar hafi verið sendir til Grænlands. Norðmenn sendu aðeins tvo fulltrúa síns hers.
Grænland Donald Trump Bandaríkin Danmörk Skattar, tollar og gjöld Evrópusambandið Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Frakkland Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira