Úr útvarpinu í orkumálin Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 12. janúar 2026 14:36 Hafdís Helga Helgadóttir hefur starfað á Rúv undanfarin ár en reynir nú fyrir sér á nýjum vettvangi. Vísir/aðsend Fjölmiðlakonan Hafdís Helga Helgadóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Samorku, hagsmunasamtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. Hafdís Helga er með BA-gráðu í leiklist frá Listaháskóla Íslands en hún færir sig til Samorku frá Ríkisútvarpinu þar sem hún hefur starfað sem fréttamaður og við dagskrárgerð undanfarin átta ár, nú síðast sem umsjónarmaður Morgunútvarpsins á Rás 2.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samorku. „Orku- og veitumálin eru stórkostlega spennandi um þessar mundir og framtíðin kallar á lifandi og ábyrgt samtal um þau. Ég er bæði glöð og spennt að fá tækifæri til að taka þátt í þeirri umræðu sem upplýsingafulltrúi Samorku. Það er mikill heiður að starfa með öllu því einstaka fagfólki sem vinnur að sjálfbærri framtíð í orku- og veitumálum landsins,“ er haft eftir Hafdísi í tilkynningunni. Líkt og áður segir er Samorka samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi en aðildarfyrirtæki Samorku reka grundvallarinnviði samfélagsins eins og því er lýst í tilkynningunni. Þar undir eru hita-, vatns- og fráveitukerfi landsins auk þess sem undir samtökin heyra fyrirtæki úr allri virðiskeðju grænnar raforku, það er framleiðslu, flutningi, dreifingu, sölu og ráðgjöf. Fréttir af fækkun starfsfólks í fjölmiðlastéttinni hafa vakið athygli að undanförnu. Í lok síðasta árs var nokkrum blaða- og fréttamönnum sagt upp hjá Árvakri, útgefanda mbl.is og Morgunblaðsins, auk þess sem blaðamönnum hefur fækkað á fréttastofu Sýnar undanfarin misseri. Þá hafa jafnframt verið mannabreytingar hjá Ríkisútvarpinu sem auk þess hætti að senda út tíufréttir í fyrra. Fréttin hefur verið uppfærð.
Vistaskipti Fjölmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Orkumál Ríkisútvarpið Mest lesið Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira