Danskir og bandarískir erindrekar funda um Grænland í næstu viku Agnar Már Másson skrifar 7. janúar 2026 17:53 Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. AP/Julia Demaree Nikhinson Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur staðfest að danskir og bandarískir erindrekar muni eiga fund saman í næstu viku um Grænland. Bandaríkjaforseti og þjóðaröryggisráð eigi í virku samtali um möguleg kaup á eyjunni. „
Ég mun hitta þá í næstu viku,“ sagði Rubio við blaðamenn í Washington eftir hádegi í dag en neitaði að tjá sig um hugsanlega hernaðaríhlutun Bandaríkjanna til að ná Grænlandi á sitt vald, að því er DR greinir frá. Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlendinga, segist munu taka þátt á fundinum að sögn grænlenska miðilsins Sermitisiaq. „Auðvitað tek ég þátt, það er okkar land auk Danmerkur sem hefur farið fram á fundinn.“ Skömmu síðar, á sjötta tímanum eftir hádegi, staðfesti Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, að Trump og þjóðaröryggisráð hans hefðu átt samræður um möguleg kaup á eyjunni. „Allir möguleikar eru á borðinu,“ sagði Leavitt á blaðamannafundi í dag. Spenna hefur magnast milli Dana, Bandaríkjamanna og Grænlendinga þar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti og stjórn hans hafa lýst því forgangsatriði í þjóðaröryggismálum að ná eyjunni, sem lútir danskri krúnu, á sitt vald. Innrás sem Bandaríkin gerðu um helgina inn í Venesúela til að leggja meðal annars undir sig auðlindir þar hefur vakið spurningar hvort Bandaríkjaforseti beiti sömu brögðum í Grænlandi. BBC hafði eftir yfirlýsingu frá Hvíta húsinu í dag að bandarísk stjórnvöld könnuðu möguleika á að leggja Danmörku undir sig, þar á meðal notkun hersins. Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana hefur gert það ljóst að hernaðaríhlutun af hálfu Bandaríkjanna jafngildi endalokum Nató. Rubio sagði að það hafi ávallt verið áætlun Trumps að kaupa Grænland. „Það er ekkert nýtt. Hann talaði um það á sínu fyrsta kjörtímabili,“ sagði Rubio. „Hann er heldur ekki fyrsti forsetinn sem vill kanna hvernig við getum lagt undir okkur Grænland,“ bætti hann við og nefndi Harry Truman fyrrv. forseta í því samhengi sem reyndi að kaupa landið 1946. Rubio sagði að ef Bandaríkjaforsetar skilgreindu nokkra ógn við land sitt geti þeir ávallt áskilið sér þann möguleika að beita herafla, en fyrst vilji þeir reyna diplómatískar boðleiðir. „Þar á meðal í Venesúela. Við reyndum ítrekað að komast að niðurstöðu sem fólst ekki í því að fara inn og grípa ákærðan dópsmyglara,“ bætti Rubio við með vísan til Nicolás Maduro.
Grænland Bandaríkin Danmörk Venesúela Donald Trump Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira