Í skýjunum með sigurkörfu gegn liðinu sem honum fannst sparka sér í burtu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. janúar 2026 11:30 Kevin Durant sendi gamla félaginu sínu, Phoenix Suns, pillu eftir að hafa skorað sigurkörfu Houston Rockets gegn því í nótt. getty/Alex Slitz Kevin Durant var hinn kátasti eftir að hafa skorað sigurkörfu Houston Rockets gegn sínu gamla liði, Phoenix Suns, í NBA-deildinni í nótt. Honum fannst Phoenix fara illa með sig þegar hann yfirgaf félagið síðasta sumar.
Þegar 1,6 sekúndur voru eftir af leiknum í Houston í nótt setti Durant niður þriggja stiga skot og tryggði heimamönnum sigurinn, 100-97. KEVIN DURANT HITS THE CLUTCH 3 TO WIN IT FOR HOUSTON 🚨 pic.twitter.com/1lC1qjT0Ok— NBA (@NBA) January 6, 2026 Durant var stigahæstur í liði Houston með 26 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst. Durant segir að sigurkarfan hafi skipt hann meira máli en ella í ljósi þess að leikurinn var gegn Phoenix, félaginu sem hann lék með áður en hann gekk í raðir Houston í sumar. „Alveg klárlega. Þetta var staður sem mig langaði ekki að yfirgefa. Þetta var í fyrsta sinn - ég vil ekki hljóma of dramatískur en ég mun gera það - sem mér fannst mér vera sparkað í burtu,“ sagði Durant. „Það var gott að spila gegn liði sem sparkaði þér öfugum út og gerði þig að blóraböggli fyrir öllum vandamálum þess. Það var sárt því ég gaf allt sem ég átti til Suns, Phoenix-svæðisins og Arizona almennt. En svona er bara leikurinn. Þegar þú spilar gegn gamla liðinu þínu hefurðu eitthvað að sanna.“ Durant lék í tvö og hálft tímabil með Phoenix en á þeim tíma komst liðið aldrei lengra en í 1. umferð úrslitakeppninnar. Í sumar var Durant skipt til Houston í staðinn fyrir Jalen Green og Dillon Brooks. Á þessu tímabili er hinn 37 ára Durant með 25,7 stig, 5,0 fráköst og 4,6 stoðsendingar að meðaltali í leik. Houston er í 4. sæti Vesturdeildarinnar en Phoenix í því sjöunda.
NBA Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira