Spunaleikari vill annað sæti Samfylkingarinnar í borginni Agnar Már Másson skrifar 3. janúar 2026 09:25 Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir vann áður hjá Stígamótum en réði sig svo til Aton JL. Hún re spunaleikari hjá Improv Ísland. Aðsend Samskiptasérfræðingurinn og spunaleikarinn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir gefur kost á sér í 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hún er formaður kvennahreyfingar flokksins og langar að leysa leikskólamálin í „eitt skipti fyrir öll.“
Steinunn greinir frá þessu í tilkynningu til fjölmiðla. Hún býður sig þriðji frambjóðandinn til að gefa kost á sér í sætið á eftir Skúla Helgasyni borgarfulltrúa og Bjarnveigu Birtu Bjarnadóttur, rekstrarstjóra Tulipop og fulltrúa ungliðaflokksins. „Ég brenn sérstaklega fyrir því að leysa leikskólamálin í eitt skipti fyrir öll. Reykjavík á að geta boðið öllum börnum tímanlega upp á pláss í leikskóla og tryggt gott starfsumhverfi fyrir starfsfólk þeirra,“ skrifar Steinunn í tilkynningu. Steinunn er með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá Columbia University í New York og BA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands. Hún er í dag ráðgjafi hjá Aton JL og var talskona Stígamóta um árabil, auk þess sem hún er formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar. Hún hefur einnig gegnt starfi skrifstofustýru UN Women í Japan og verið framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Þá er hún einnig spunaleikari hjá Improv Ísland. „Öruggt húsnæði er grundvöllur allrar velferðar. Reykjavík á að tryggja raunverulegt aðgengi að öruggu og hagkvæmu húsnæði, sérstaklega fyrir ungt fólk, ungar fjölskyldur og einstæða foreldra. Til þess þarf fjölbreytt framboð, uppbyggingu sem tekur mið af þörfum fólks og áframhaldandi stuðning við óhagnaðardrifin leigufélög svo fólk hafi raunverulega valkosti.“ Hún kveðst leggja áherslu á að Reykjavík sé rekin af ábyrgð og skynsemi. „Rekstur Reykjavíkur á að vera traustur og gagnsær, þar sem forgangsraðað er í grunnþjónustu sem skiptir fólk máli. Við eigum að sinna viðhaldi áður en vandamál verða að krísum, einfalda ferla og fjarlægja óþarfa hindranir – hvort sem fólk er að byggja sér heimili, reka fyrirtæki eða skapa ný tækifæri.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Mest lesið Vaktin: Maduro handtekinn eftir árás á Venesúela Erlent Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Innlent Nafn konunnar sem lést á Hvolsvelli Innlent Alvarlegt bílslys á Biskupstungnabraut Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í 35 prósentum Innlent Banaslys á Biskupstungnabraut Innlent Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent „Allavega er þessi einræðisherra farinn“ Innlent Bandaríkin sprengja í höfuðborg Venesúela Erlent Eldur við flugvöll á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Þessi bjóða sig fram fyrir Samfylkinguna í Reykjavík „Allavega er þessi einræðisherra farinn“ Nafn konunnar sem lést á Hvolsvelli Banaslys á Biskupstungnabraut Krakkarnir beðið um að halda áfram heimsóknum á Hrafnistu Alvarlegt bílslys á Biskupstungnabraut Hótaði að nauðga manni og skallaði annan vegna húðlitar Stærðfræðikennarinn Stein sækist eftir fjórða sæti Langar raðir á Sorpu eftir hátíðarnar Sjálfstæðisflokkurinn í 35 prósentum Rýnt í stöðuna í Venesúela og Sjálfstæðisflokkurinn á flugi Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Dóra Björt vill þriðja eða fjórða sæti Vilhjálmur tekur oddvitaslaginn í Reykjanesbæ Spunaleikari vill annað sæti Samfylkingarinnar í borginni „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Íslenskur maður lést í Úkraínu Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Sjá meira