Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. desember 2025 20:26 Kínverska fyrirtækið ByteDance á TikTok. EPA Eigendur TikTok, fyrirtækið ByteDance, hafa undirritað samning við fjárfesta sem tryggir að samfélagsmiðilinn verði áfram opinn fyrir bandaríska notendur. Banninu hefur ítrekað verið frestað.
Í gær tilkynntu eigendur samfélagsmiðilsins starfsfólki sínu að þeir hafi undirritað samning við Bandaríkin og fjárfesta víða frá um áframhaldandi starfsemi þess í Bandaríkjunum. Þrjú fyrirtæki, Oracle, Silver Lake og MGX í Abú Dabí, eiga nú öll fimmtán prósent hvort í fyrirtækinu. ByteDance á 19,9 prósent en fjárfestar sem höfðu áður fjárfest eiga enn sinn hlut, samkvæmt breska ríkisútvarpinu. Meðal eigenda tæknifyrirtækisins Oracel er Larry Ellison, bandamaður Trumps. Fjölmiðlamógúlinn Rupert Murdoch og sonur hans Lanchan voru sagðir vera meðal fjárfesta. Vorið 2024 undirritaði Joe Biden, þáverandi Bandaríkjaforseti, lög sem settu bann á samfélagsmiðilinn TikTok. Miðilinn er í eigu ByteDance sem er kínverskt fyrirtæki. Sunnudaginn 19. janúar, degi áður en Trump tók við embætti, tók bannið gildi en með lögunum var ætlunin að fá eigendurna til að selja fyrirtækið til Bandaríkjamanna. Klukkustundum síðar var opnað aftur fyrir miðilinn þar sem eigendurnir höfðu fengið loforð frá Trump um að hann myndi heimila starfsemina með forsetatilskipun þegar hann tæki við embætti. Banninu var ítrekað frestað en í september sagði Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, að erindrekar frá Kína og Bandaríkjunum hefðu náð saman um frumdrög að samkomulagi um framtíð samfélagsmiðilsins. TikTok er einn vinsælasti samfélagsmiðillinn í dag en um 170 milljónir notenda eru í Bandaríkjunum.
TikTok Kína Bandaríkin Samfélagsmiðlar Donald Trump Joe Biden Tengdar fréttir TikTok bann í Bandaríkjunum TikTok bann tók formlega gildi í Bandaríkjunum í gærkvöld og milljónir notenda komast nú ekki inn á forritið. Verðandi forseti Bandaríkjanna íhugar að blanda sér í málið. 19. janúar 2025 10:03 Nálgast samkomulag um TikTok Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að erindrekar frá Bandaríkjunum og Kína hefðu náð saman um frumdrög að samkomulagi um framtíð samfélagsmiðilsins TikTok í Bandaríkjunum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun ræða málið við Xi Jinping, kollega sinn í Kína, á föstudaginn. 15. september 2025 14:30 Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira
TikTok bann í Bandaríkjunum TikTok bann tók formlega gildi í Bandaríkjunum í gærkvöld og milljónir notenda komast nú ekki inn á forritið. Verðandi forseti Bandaríkjanna íhugar að blanda sér í málið. 19. janúar 2025 10:03
Nálgast samkomulag um TikTok Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að erindrekar frá Bandaríkjunum og Kína hefðu náð saman um frumdrög að samkomulagi um framtíð samfélagsmiðilsins TikTok í Bandaríkjunum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun ræða málið við Xi Jinping, kollega sinn í Kína, á föstudaginn. 15. september 2025 14:30