Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Árni Sæberg skrifar 19. desember 2025 10:42 Kristján Markús í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/Anton Brink Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Kristjáns Markúsar Sívarssonar, um að rétturinn tæki fyrir líkamsárásarmál hans. Hann vildi meina að Landsréttur hefði dæmt hann að ósekju fyrir að kasta óþekktum hlut í höfuð konu, með þeim afleiðingum að hún hlaut höfuðkúpubrot.
Í ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfisbeiðni Kristjáns Markúsar segir að með héraðsdómi hafi hann verið sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa veist með ofbeldi að konunni og kastað óþekktum hlut í höfuð hennar með þeim afleiðingum að hún hlaut opið sár á höfði, höfuðkúpubrot og mar á heila. Talið hafi verið sannað að við þá atlögu hefði konan fallið í gólfið og brotnað hefði upp úr hægri augntönn hennar. Kristján Markús hafi jafnframt verið sakfelldur fyrir vopna- og fíkniefnalagabrot og honum gert að sæta fangelsi í eitt ár og fjóra mánuði. Landsréttur hafi talið þær sakargiftir á hendur Kristjáni Markúsi að konan hefði fallið í gólfið við höfuðhöggið og við það brotnað upp úr tönn hennar ekki fá viðhlítandi stuðning í framburði konunnar og vitnis og sýknað Kristján Markús af þeim. Dómur héraðsdóms hvað þennan ákærulið varðaði hafi að öðru leyti verið staðfestur. Þá hafi hann verið sýknaður af sakargiftum samkvæmt vopna- og fíkniefnalögum á grundvelli fyrningar. Refsing hans hafi verið ákveðin tólf mánaða fangelsi. Hafi talið annmarka á rannsókn en ekki farið út í þá nánar Þá segir að Kristján Markús hafi byggt áfrýjunarleyfisbeiðni sína á því að málið hafi verulega almenna þýðingu um hvaða áhrif annmarkar á rannsókn lögreglu eigi að hafa á úrlausn máls. Landsréttur hafi talið að annmarkar hafi verið á rannsókn lögreglu en ekki útskýrt nánar hverjir þeir væru eða hvernig þeir gætu þrátt fyrir allt ekki haft áhrif á niðurstöðu. Auk þess telji hann niðurstöðu Landsréttar um sakfellingu ranga og vísi í þeim efnum einkum til misræmis í framburði konunnar og vitna. Loks telji hann að refsing hans hafi ekki verið ákveðin í samræmi við dómaframkvæmd. Endurskoða ekki sönnunargildi munnlegs framburðar Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að að virtum gögnum málsins verði hvorki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu né að mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um þannig að fullnægt sé skilyrðum laga um meðferð sakamála. Þá séu ekki efni til að beita heimild sömu laga til veita áfrýjunarleyfi ef ástæða er til að ætla að málsmeðferð fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant eða dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi eða efni í málinu. Niðurstaða Landsréttar um sakfellingu byggi jafnframt fyrst og fremst á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar en það mat verði ekki endurskoðað fyrir Hæstarétti. Beiðninni sé því hafnað.
Dómsmál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira